




Singapúr, Víetnam og Kambódía
4. – 24. nóvember 2025
Ferðin er uppseldFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
014. nóvember 2025Flug til Singapúr
Flogið frá Keflavík með FI454 til London kl.16:20 og lent á Heathrow-flugvelli kl.19:30. Flogið með Singapore Airlines til Singapúr kl.22:05. Singapore Airlines er það flugfélag sem flestir farþegar gefa hæstu einkunn, ekki síst vegna frábærrar þjónustu. Allur matur og drykkir eru ókeypis um borð.

025. nóvember 2025Singapúr
Lent á Changi-flugvelli í Singapúr kl.19:00. Ekið inn í miðborgina (45 mín.) og innskráning á Hotel Parkroyal on Beach Road (4*). Margir vilja eflaust hvíla sig eftir flugið og fá sér bara matarbita á hótelinu, en einnig er hægt að bregða sér út að borða í næsta nágrenni. Singapúr er heimsfræg fyrir dásamleg veitingahús af fjölbreyttasta tagi. Matargerðarlistin er oft bræðingur af því besta frá Kínverjum, Indverjum, Malajum og jafnvel Aröbum. Sumir segja að hvergi í heiminum sé betra að borða en í þessari borg.
036. nóvember 2025Singapúr
Eftir morgunverð á hótelinu er farið í kynnisferð um borgina kl. 9:00. Singapúr er einstakur staður, ein glæsilegasta heimsborg Asíu þar sem gífurlegur metnaður ríkir á öllum sviðum, enda efnahagurinn betri en víðast á Vesturlöndum og velmegunin augljós. Landrými er takmarkað og því mikið um háar, fallegar byggingar en vandlega gætt að skilja hvarvetna eftir spildur af upprunalegum frumskógi eyjarinnar á milli húsa, mörg hundruð græn svæði, bæði stór og smá. Við byrjum á að aka um hverfið sem var kjarni nýlendustjórnar Breta og sjáum m.a. Krikketklúbbinn, þinghúsið og ráðhúsið. Því næst er heimsóttur einn frægasti grasagarður heims, National Orchid Garden, sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er að finna 60 þúsund tegundir af brönugrösum. Á bakaleiðinni til miðborgarinnar er ekið eftir Orchard Road þar sem einhverjar glæsilegustu verslanahallir Asíu standa í röðum. Þá er staldrað við í Merlion Park, við Marina Bay þar sem áður var umskipunarhöfnin, en segja má að sé nú miðpunktur Singapúr. Kringum þetta lón, þar sem Singapore River, lífæð borgarinnar, rennur til sjávar, skartar allt um kring stórfenglegum mannvirkjum sem sum hver, eins og t.d. Marina Bay Sands hótelið, teljast meðal mögnuðustu afreka byggingarlistar nútímans í heiminum. Kynnisferðinni lýkur í Chinatown, Kínahverfinu, þar sem nýr og gamall tími tvinnast saman á skemmtilegan hátt – hefðbundnar búðir, listiðnaður, veitinga- og kaffihús. Við skoðum m.a. stærsta Búddamusterið í hverfinu. Eftir hádegi fer hver sinna ferða í Singapúr. Úr mörgu er að moða. Urmull af söfnum, áhugaverðum mannvirkjum, verslunarhverfum, veitingahúsum o.fl. Einfaldasta og einna vinsælasta tegund matstaða í Singapúr kallast Hawker Centre, sem er það sem við þekkjum sem mathallir. Þar má fá gómsæta máltíð með stórum bjór fyrir um 1.000 ISK, en annars er verðlag fremur hátt á veitingahúsum í Singapúr. Uppástungur: Fá sér „Singapore Sling kokteil“ á Raffles-hótelinu og/eða Lantern Bar á þaki Fullerton Bay Hotel. Skoða Marina Sands Hotel og fara upp í „skipið“, á toppi turnanna þriggja og horfa yfir borgina og höfnina. Í kjallara Marina Sands hótelsins er stærsta spilavíti Asíu. Í Singapúr er einnig fjöldi góðra safna, s.s. National Museum of Singapore, Asian Civilisations Museum, Peranakan Museum og Singapore Art Museum. (M)

047. nóvember 2025Singapúr–Hanoi
Morgunverður og útskráning á hótelinu. Þar sem brottför út á flugvöll er ekki fyrr en á hádegi er hægt að nota morguninn til að sjá sig betur um í borginni eða versla, en kl.12:00 er ekið út á Changi-flugvöll þaðan sem flogið er með SQ194 kl.15:05 til Hanoi og lent þar kl.17:35. Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum á flugvellinum. Ekið á The Ann Hotel (4*) þar sem gist verður næstu þrjár nætur. ATH – Allir sem heimsækja Víetnam þurfa að sækja um „Visa on Arrival“ á netinu fyrirfram til að komast inn í landið. Leiðbeiningar þar að lútandi verða sendar út með góðum fyrirvara til farþega. (M)
058. nóvember 2025Hanoi
Að loknum morgunverði kl. 8:30 er lagt af stað í heils dags kynnisferð um Hanoi. Fyrst er haldið á matvælamarkaðinn. Við göngum um þrönga ganga og ranghala þar sem ýmis forvitnileg matvara er seld. Þarna er ævinlega iðandi mannlíf, borgarbúar að draga björg í bú. Þá er ekið að Ho Tay (Vesturvatni) og skoðað Búddahofið Tran Quoc sem byggt var á 6. öld e. Kr. Þá liggur leiðin á Víetnamska þjóðfræðisafnið þar sem fá má allgóða mynd af fjölbreyttum uppruna kynþátta og sögu víetnömsku þjóðarinnar í aldanna rás. Síðan er haldið að vatninu Hoan Kiem og skoðaður minnisvarðinn um Ly Thai To keisara sem gerði Hanoi að höfuðborg ríkis síns árið 1010. Að svo búnu er snæddur hádegisverður á ljómandi góðu veitingahúsi sem nefnist Rue Lamblot. Eftir matinn er stutt ökuferð til hins fræga Musteris bókmenntanna sem var eini háskóli landsins frá 1076 og fram á 19. öld. Loks er farið í gönguferð um elsta borgarhverfi Hanoi þar sem í 36 þröngum götum má fá nasasjón af hefðbundnum lífsvenjum Víetnama. Gönguferðinni lýkur á markaðnum Hang Be. Síðast á dagskránni er svo Vatnsbrúðuleikhús sem er einstakt listform, iðkað í Norður-Víetnam. (M, H)

069. nóvember 2025Hanoi
Að loknum morgunverði kl. 8:30 er lagt af stað í skoðunarferð um Hanoi. Þá er haldið til eins frægasta staðar borgarinnar sem er fangelsið Hoa Lo. Þar geymdu Frakkar félaga úr andspyrnuhreyfingunni um miðja 20. öld en síðar, í Víetnamstríðinu á 7. áratugnum og fram til 1975, sátu þar aðallega bandarískir stríðsfangar, þeir sem sluppu lifandi þegar sprengjuflugvélar þeirra voru skotnar niður yfir Norður-Víetnam. Fólkinu í Hanoi var ekki sérlega hlýtt til Bandaríkjamanna sem fleygðu meira magni af sprengjum yfir borgina og nágrenni hennar en sem nam öllum sprengjum sem allir stríðsaðilar notuðu í seinni heimsstyrjöldinni. Bandarísku flugmennirnir uppnefndu Hoa Lo „Hanoi Hilton“. Næst er snæddur hádegisverður á góðum veitingastað sem heitir Koto. Síðan er haldið til torgsins Ba Dinh þar sem Ho Chi Minh lýsti yfir sjálfstæði Víetnams árið 1945. Þaðan göngum við að húsinu sem Ho Chi Minh bjó í á árunum 1958–1969 og stýrði hreyfingunni sem hann lifði ekki að sjá vinna fullnaðarsigur yfir her Suður-Víetnam og Bandaríkjanna, árið 1975. Í grenndinni stendur svo Einnar súlu Búddahofið sem reist var árið 1049 og er meðal frægustu fornminja Víetnams. Þessari ferð lýkur um kl. 15 svo gott ráðrúm gefst til að skoða sig um á eigin spýtur eða njóta lífsins á annan hátt það sem eftir lifir þessa síðasta dags í Hanoi. (M, H)

0710. nóvember 2025Halong flói
Kl. 8:30 er brottför frá hótelinu. Haldið til strandar og ekið um búsældarlegar sveitir Rauðársléttunnar, síðasta spölinn yfir nýja brú sem er sú lengsta í Suðaustur-Asíu. Komið til hafnarbæjarins Halong þangað sem við verðum sótt um kl. 11:30. Þar erum við boðin velkomin með tedrykkju á hafnarbakkanum áður en haldið er með skipsbáti út að skemmtiferðasnekkjunni Dragon Legend Cruise þar sem gist verður næstu tvær nætur. Þegar innskráningu er lokið og fólk hefur fengið sína einkakáetu hefst sigling um Bai Tu Long flóa, hluta af Halong flóa sem er eitt af undrum veraldar og á heimsminjaskrá UNESCO. Kl. 13:15 er gómsætur hádegisverður snæddur um borð og svo hefst sigling um Cap La svæðið. Tækifæri gefst til að fara á kajak og kanna þetta töfraumhverfi. Kalksteinsklettarnir sem gnæfa hvarvetna upp úr haffletinum eru tilkomumikil og heillandi sjón. Þetta svæði er tiltölulega ósnortið í samanburði við fjölfarnari hluta Halong Bay, því fáir skemmtiferðarbátar sigla enn sem komið er þessa leið. Kl. 16:00 er komið aftur um borð í snekkjuna. Hægt er að hvílast, njóta sólar á siglingunni og horfa á sólina setjast. Kl. 19:00 er snæddur ljúffengur veislumatur, matbúinn af færu fagfólki um borð. Eftir mat er tilvalið að njóta flóastemmningarinnar uppi á efra dekki, reyna sig við smokkfiskveiðar eða panta sér nudd. (M, H, K)

0811. nóvember 2025Sigling um Bai Tu Long flóa
Kl. 7:30 er boðið upp á Tai Chi æfingar á sólardekki meðan sól rís úr sæ. Morgunsvalinn er hressandi. Morgunverður er kl. 8:00 í veitingasalnum, þaðan sem gott útsýni er yfir flóann. Og skipið siglir af stað. Kl. 8:45 er farið í land að skoða Thien Canh Son hellinn, sem er fegursti hellir í Bai Tu Long flóa, þar sem getur að líta skrautleg dropasteinskerti sem verið hafa að myndast á þúsundum ára. Tækifæri gefst til að kanna Hon Co eyju á kajak. Kl. 10:30 er stigið aftur á skipsfjöl og siglt áfram til Cong Dan þar sem hægt er að synda og njóta lífsins í tandurhreinni sandfjöru. Kl. 12:30 er grillveisla á ströndinni sem skipskokkarnir sjá um. Strandlífið heldur áfram til kl. 14:30 þegar haldið er aftur til skips. Eftir það er frjáls tími til hvíldar eða skemmtunar á snekkjunni sem er bæði fögur og fjölbreytileg en kl. 17:30 hefst á dekki sýnikennsla í matreiðslu, stjórnað af yfirmatsveini Dragon Legend. Kl. 19:00 er kvöldverður fram borinn. Síðan notið lífsins og jafnvel rennt fyrir smokkfisk. (M, H, K)
0912. nóvember 2025Halong–Hanoi–Saigon
Kl. 6:15 er aftur boðið upp á hressandi og endurnærandi Tai Chi meðan flóinn skartar sinni morgunfegurð og morgunverður er borinn fram kl. 7:00. Kl. 7:45 er farið í land til að skoða Vung Vieng, lítið, afskekkt fiskiþorp með afar fögru umhverfi. Fiskimenn á bambusbátum bjóða okkur að kynnast sínum einstöku lífsháttum. Kl. 09:00 er farið aftur um borð í snekkjuna og nú þarf að pakka niður og undirbúa brottför, gómsætur dögurður er borinn fram meðan siglt er til hafnar. Við komum í land kl. 11:30 og um borð í rútuna sem ekur okkur til Hanoi-flugvallar. Flogið með VN255 kl. 16:00 til Saigon og lent þar kl. 18:15. Við höldum beint á vandaðan veitingastað sem heitir Hoa Tuc og snæðum saman kvöldverð áður en farið er á hið fræga Rex Hotel (5*) sem stendur í hjarta borgarinnar, þar sem við gistum næstu 3 nætur. Rex hótel var oft í brennidepli í Víetnamstríðinu því þar hélt bandaríska herstjórnin sinn daglega blaðamannafund sem útvarpað var um heim allan og hófst með ávarpinu „Good morning, Vietnam“. (M, dögurður, K)

1013. nóvember 2025Saigon
Að loknum morgunverði kl. 8:30 er lagt af stað í skoðunarferð um þessa glæsilegu, gömlu höfuðborg Franska Indókína, sem gekk undir nafninu „París Austurlanda“. Fyrst er skoðuð frægasta bygging borgarinnar, Pósthúsið, sem líklega var teiknað af Marie-Alfred Foulhoux en er oft eignað Gustave Eiffel sem hannaði Eiffel-turninn. Pósthúsið var reist á árunum 1886–1891. Í grenndinni stendur Notre Dame dómkirkjan, einnig byggð af Frökkum í lok 19. aldar. Farið í heimsókn í Gialong-höllina sem hýsir Safn Ho Chi Minh borgar og fræðst um stormasama sögu hennar. Gengið um „Le Loi“ götu og farið í heimsókn til listamanns sem sérhæfir sig í hefðbundnu ristuþrykki. Hádegisverður er snæddur á afbragðsveitingahúsi sem nefnist Dining Room. Þá er gamli markaður miðbæjarins skoðaður, rölt um stræti elsta borgarhlutans og tyllt sér niður til að fá sér hressingu á einhverju af hinum frægu, sjarmerandi kaffihúsum sem prýða staðinn. Að svo búnu er hægt að velja um að láta aka sér heim á hótel eða verða eftir á Ben Thanh markaðnum til að versla og sjá sig um. (M, H)

1114. nóvember 2025Cu Chi göngin
Lagt af stað 8:30 að loknum morgunverði í um rúmlega klukkustundar bílferð norður fyrir borgina til að skoða hin frægu Cu Chi göng, sem er eins konar safn mannvirkja og hergagna og einhverjar merkilegustu minjar um Víetnam-stríðið sem hægt er að sjá í landinu. Leiðin liggur um fagrar sveitir. Til baka er farið á hraðbáti niður Saigon-ána. Siglingin tekur eina og hálfa klukkustund. Eftir hádegið er hægt að sjá sig um í borginni á eigin spýtur. Margt er að skoða í Saigon, til dæmis ekki fráleitt að bregða sér á Stríðsminjasafnið eða skoða Forsetahöll Suður-Víetnam. Þá er ekki úr vegi að fá sér kaffi eða aðra hressingu á 52. hæð Bitexo, hæstu byggingar borgarinnar, þaðan sem útsýnið er einstakt. Um kvöldið gefst kostur á að kynnast hinum víðfræga víetnamska götumat og næturlífinu í Saigon undir handleiðslu staðarleiðsögumanns okkar. Þessi ferð, sem er utan dagskrár og ekki innifalin í verði, verður nánar kynnt síðar. (M)
1215. nóvember 2025Saigon–Cai Be–Can Tho
Kl. 8:30 að loknum morgunverði er Rex Hotel kvatt og ekið áleiðis til Mekong-óshólmanna, sem eru eitthvert rómaðasta gósenland Asíu. Engar ýkjur eru að þar drjúpi smjör af hverju strái. Eftir ósigur Frakka í orrustunni við Dien Bien Phu árið 1954, sem markaði endalok nýlenduveldis þeirra í Indókína, voru það þung spor fyrir margar franskar fjölskyldur að yfirgefa sveitirnar á Mekong-svæðinu sem í sumum tilfellum höfðu verið heimkynni þeirra kynslóðum saman. Enn í dag hugsa allmargir Frakkar til þessa „heimalands síns“ með sárum söknuði. Á leiðinni til óshólmanna er höfð viðkoma í Cao Dai kirkju, guðshúsi einstakra trúarbragða, sem eru einskonar sambland af taóisma, Búddisma og Konfúsíusarhyggju ásamt kristni og íslam, sem margar milljónir manna í Víetnam aðhyllast. Við ökum fyrst til bæjarins Cai Be og fáum þar prívat-júnku til að sigla á um ána. Fyrst heimsækjum við fræga fljótandi markaði. Eftir að komið er aftur á þurrt land skoðum við ýmiss konar heimaframleiðslu, s. s. á hrískökum, hrísgrjónapoppkorni og kókoshnetukaramellum. Við siglum svo áfram milli sígrænargrænna og fagurra Mekong-óshólmanna eftir margslungnu neti ótal þveráa, sunda og síkja. Hádegismatur er borinn fram fram á veitingastað á einni eyjunni áður en við förum aftur um borð í júnkuna og siglum í rólegheitum áfram til Vinh Long og virðum á leiðinni fyrir okkur ljúft landslag og friðsælt líf sveitafólksins á Óshólmunum. Síðan er farið í land og stigið upp í rútuna sem flytur okkur til Can Tho, sem er höfuðborg Mekong-svæðisins þar sem gist er næstu tvær nætur á Hotel Charmant Suites (5*). (M, H)

1316. nóvember 2025Can Tho
Að loknum morgunverði er haldið í skoðunarferð um borgina og farið á bátum að heimsækja fljótandi markaðinn Cai Rang. Síðan er siglt um mörg og margvísleg síki þar sem krökkt er af bátum fólks sem kemur úr nærliggjandi sveitum að selja afurðir sínar, aðallega grænmeti og ávexti. Þetta er litríkt mannlíf. Can Tho er háskólaborg með yfir milljón íbúa. Hún stendur á mótum þriggja vatnsfalla í landfræðilegri miðju Óshólmanna. Þetta svæði var á miðöldum hluti af heimsveldi Kmera (sem við eigum eftir að kynnast betur í Siem Reap) og enn í dag á verulegur hluti íbúanna ættir að rekja til Kmera. Eftir hádegi gefst ráðrúm til að svipast um á eigin spýtur en um kvöldið er snæddur sameiginlegur kvöldverður á hótelinu. (M, K)

1417. nóvember 2025Can Tho–Chau Doc
Morgunverður er snæddur á hótelinu og síðan skráð sig út og haldið áfram upp með Mekong-fljóti til Chau Doc. Þetta er drjúgur spölur, næstum þriggja tíma akstur, en komið við á nokkrum stöðum, m.a. á gríðarstórum krókódílabúgarði. Kvöldverður á Hotel Victoria Chau Doc (4*) þar sem við gistum um nóttina. (M, K)
1518. nóvember 2025Chau Doc–Phnom Penh
Að loknum morgunverði er haldið af stað með hraðbáti frá bryggju Victoria-hótelsins upp Mekong-fljót. Stutt er til landamæra Kambódíu frá Chau Doc. Við dveljum um stund við landamærastövar beggja landanna þar sem við þurfum að fá stimpil í passana. Þar þurfum við að hafa eftirfarandi tiltækt: 1) Vegabréfin 2) 36 USD (í seðlum) Um 5 klst. ánægjuleg sigling er með hraðbátnum til Phnom Penh. Á leiðinni getum við virt fyrir okkur forvitnilegt mannlífið á bökkum Mekong-fljóts. Afbragðs tækifæri til myndatöku. Komið til Pnom Penh, sem stendur á mótum stórfljótanna Mekong og Tonlé Sap, um kl. 13. Að lokinni innskráningu á Royal Palace Gate Hotel, sem er frábært 5 stjörnu hótel rétt hjá konungshöllinni í miðri borginni, gefst góður tími til að skoða sig um eða njóta lífsins við sundlaug hótelsins. Phnom Penh var álitin ein fegursta borg Franska Indókína. En á tímum ógnarstjórnar Rauðu Kmeranna 1975–1979 voru nær allir íbúarnir reknir út úr borginni með fádæma harðýðgi og hnepptir í þrælkunarvinnu í sveitum. Undanfarna áratugi hefur samt gengið býsna vel að hleypa nýjum krafti í borgarlíf Phnom Penh og er sérlega gaman að ganga þar um göturnar, kíkja á markaði og setjast niður á veröndum kaffihúsa eða góðum veitingastöðum sem enginn skortur er á, einkum á árbakkanum ekki langt frá frá hótelinu okkar. Þetta er heillandi borg, í senn vestræn og asísk, með breiðgötum og háum trjám í röðum meðfram þeim, fögrum pagóðum og glæsilegum byggingum frá nýlendutímanum. (M)

1619. nóvember 2025Phnom Penh
Að loknum morgunverði kl. 8:30 er farið að skoða Konungshöllina sem fullgerð var árið 1866 á nýlendutíma Frakka. Við hlið hallarinnar stendur Silfurpagóðan sem dregur nafn af fimm tonnum af skínandi silfri sem lögð voru í gólfið. Upphaflega nafnið er Wat Prakeo sem þýðir Musteri hins smaragðsgræna Búdda. Í hádeginu er snæddur dásamlegur kmeramatur á víðfrægu veitingahúsi sem nefnist Malis. Matreiðslumeistarinn er einn helsti stjörnukokkur Kambódíu, Luu Meng. Eftir hádegið fræðumst við um þann hrylling sem kalla mætti helför kambódísku þjóðarinnar, þegar Pol Pot og Rauðu kmerarnir hans myrtu á tæpum fjórum árum tæpar þrjár milljónir landa sinna. Fyrst er heimsótt safn í gömlu skólahúsi, Tuol Sleng, þar sem starfrækt var skelfilegasta fangelsi Rauðu kmeranna, S-21. Því næst höldum við til aftökustaðarins illræmda í Choeung Ek sem umheimurinn kallar Killing Fields upp á ensku. Þar létu ótal margir lífið og er hægt að sjá þarna ýmsar minjar um fórnarlömbin og örlög þeirra, fjöldagrafir og „stúpu“ fulla af hauskúpum. Eftir heimsóknina á þennan óhugnanlega stað er haldið aftur heim á hótelið, og þykir þá kannski einhverjum mál að fá sér hressingu, t.d. á þakbarnum með útsýni yfir hallargarð konungs. (M, H)
1720. nóvember 2025Phnom Penh–Siem Reap
Morgunverður á hótelinu og brottför til flugvallar kl. 10:30. Flogið með K6107T til Siem Reap kl. 13:30 og lent þar kl. 14:25. Siem Reap liggur rétt við hlið þess makalausa svæðis þar sem á síðari hluta miðalda stóð stórborg með um milljón íbúum, meðan mannfjöldi margra helstu borga Evrópu fór varla yfir tvöhundruð þúsund. Þetta var höfuðstaður stórveldis Kmera sem um alllangt skeið náði yfir stór svæði Suðaustur-Asíu. Angkor Thom var stjórnarsetrið og Angkor Wat aðalmusterið, stærsta guðshús sem fundist hefur í Suðaustur-Asíu. Siem Reap er einkar aðlaðandi 150 þúsund manna bær, fallega staðsettur á árbökkum. Þar er ánægjulegt, eftir könnun á fornminjum að morgni, að ganga um eftir hádegið og skoða fagrar byggingar, markaði og litríkt götulíf. Angkor Village Hotel er einstakur gististaður, í gangfæri við miðbæinn þar sem aðalmarkaðurinn og flest veitingahúsin og krárnar eru, ekki síst við „Pub Street“. Hótelið er afskaplega notalegt og þar er ljómandi góð sundlaug, fagrir garðar og ýmislegt annað sem hjálpar fólki að njóta lífsins. Þennan fyrsta dag í Siem Reap er boðið upp á kvöldverð á glæsilegu veitingahúsi hótelsins. (M, K)

1821. nóvember 2025Siem Reap
Eftir morgunmat kl. 8.30 er byrjað á að skoða eitt frægasta mannvirki veraldar, musterið Angkor Wat, sem reist var á ríkisstjórnarárum Suryavarmans II konungs á fyrri hluta 12. aldar. Angkor Wat mun vera ætlað að tákna fjallið Meru, bústað guðanna. Að innan eru veggir musterisins þaktir höggmyndum og lágmyndum sem endurspegla goðsagnir hindúa og sömuleiðis hetjusagnir af hernaði Suryavarmans konungs. Þá skreyta tvö þúsund Apsara-dansmeyjar musterið. Mynd af Angkor Wat prýðir nú þjóðfána Kambódíu þar sem hofið þykir táknrænt fyrir þjóðarsálina. Þá er heimsótt annað hof, Ta Prohm, reist nokkrum áratugum á eftir Angkor Wat af Jayavarman VII konungi, undir aldamótin 1200. Ólíkt öðrum fornum byggingum á svæðinu sem fallin voru í gleymskunnar dá og höfðu nánast orðið frumskóginum að bráð, var ákveðið að leyfa þessu búddahofi að vera áfram nánast í því ástandi sem það fannst í til að sýna hvernig náttúran getur leikið mannanna verk. Ta Prohm hefur verið náttúruleg leikmynd nokkurra ævintýrakvikmynda, en frægust þeirra er The Tomb Raider með Angelinu Jolie. Hádegisverður á veitingastaðnum Salabai, í hótel- og veitingaskóla fyrir nemendur sem styrktir eru til náms af því að þeir eiga þess annars ekki kost að menntast vegna fátæktar. Við höfum ævinlega fengið ljómandi góðan mat á Salabai og það er gaman að fylgjast með þessu efnilega unga fólki og styðja um leið þessa hugsjónastarfsemi. Síðdegið er frjálst. (M, H)
1922. nóvember 2025Siem Reap
Að loknum morgunverði, kl. 8:30, er farið að skoða hina fornu höfuðborg kmeraveldisins, Angkor Thom, sem er umlukt átta metra hárum múr. Farið er inn um hið mikilfenglega suðurhlið, úr steini með höggmyndum af fílum og fjórum ógnarstórum andlitum. Beggja vegna hliðsins eru 54 guðir og djöflar sem halda í hina heilögu Naga-slöngu. Síðan er haldið til Bayon-hofsins sem stendur nákvæmlega í miðpunkti Angkor Thom. Þessi fagra bygging frá 12. öld skartar 54 turnum sem tákna 54 skattlönd hins mikla stórveldis Kmera. Hádegisverður á Malis, sem er glæsilegasti veitingastaðurinn í Siem Reap (sami eigandi og Malis Phnom Penh), áður en haldið er heim á hótel. Síðdegið er frjálst en þeir sem vilja eiga völ á skipulagðri kvöldferð. (M, H)

2023. mars 2025Heimflug hefst
Morgunverður á hótelinu og útskráning fyrir hádegi á Angkor Village. Brottför til flugvallar kl. 13:30. Flogið með SQ 165 kl. 16:50 til Singapúr (farangurinn er skráður alla leið til Íslands), lent þar kl. 20:15 og síðan áfram með SQ324 til Amsterdam kl. 23:55. (M)
2124. nóvember 2025Amsterdam–Keflavík
Lent á Shiphol-flugvelli í Amsterdam kl. 06:45 og haldið áfram kl. 12:55 með FI501 heim til Íslands. Lending í Keflavík kl. 15:25.
22Praktískar upplýsingar
Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir brottför. Staðfestingargjald er óafturkræft nema ferðaskrifstofa þurfi að hætta við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, og hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Sá kostnaður rynni síðan til útlendra kortafyrirtækja, í Ísrael og Brasilíu. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Sækja þarf um vegabréfsáritun til Víetnam á netinu (e-visa). Nákvæmar leiðbeiningar um umsóknarferlið verða sendar út þegar nær dregur. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Örnólfur hannar og skipuleggur ferðina, velur áfangastaði, gististaði og alla ferðartilhögun. Fararstjórar í þessari ferð eru Örnólfur Árnason og Baldvin Hafsteinsson. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.
Gisting
- Hotel Parkroyal on Beach Road★★★★Singapúr
- The Ann Hotel★★★★Hanoi
- Dragon Legend Cruise★★★★★Halong flói
- Rex Hotel★★★★★Saigon
- Hotel Charmant Suites★★★★★Can Tho
- Hotel Victoria★★★★Chau Doc
- Royal Palace Gate Hotel★★★★★Phnom Penh
- Angkor Village★★★★★Siem Reap
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Allt flug, einnig innanlandsflug í Víetnam og Kambódíu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er: M = morgunverður, H=hádegisverður, K=kvöldverður Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Allur akstur og bátsferðir sem getið er um í ferðalýsingu. Fararstjórn: Örnólfur Árnason og Baldvin Hafsteinsson. Enskumælandi staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Ath. að ferðatryggingar kreditkorta gilda, jafnvel þótt ferð sé ekki greidd með korti. Vegabréfsáritanir fyrir Víetnam og Kambódíu. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra, c.a. $7 á dag. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Singapúr, Víetnam og Kambódía — 4. – 24. nóvember 2025.
