




Singapúr, Víetnam og Kambódía
5.–24. nóvember 2022
Ferðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
015. nóvember 2022Kelavík – Singapúr
Flogið frá Keflavík með FI 450 til Heathrow flugvallar í London kl. 7.40 og lent þar kl. 10.45. Síðan áfram með Singapore Airlines til Singapore kl. 22.05. Við erum á biðlista með Icelandair á fluginu kl. 16.10, lending 19.20, sem vonandi fæst staðfest þegar nær dregur. Singapore Airlines er það flugfélag sem flestir farþegar gefa hæstu einkunn, ekki síst vegna frábærrar þjónustu. Matur og allir drykkir eru ókeypis um borð.

026. nóvember 2022Singapúr
Lent á Changi-flugvelli í Singapúr kl. 19.00. Ekið inn í miðborgina (45 mín.) og skráð sig inn á Hotel Peninsula Excelsior (4****). Margir vilja eflaust hvíla sig eftir flugið og halda kyrru fyrir á hótelinu, en ef einhver er svangur erum við á réttum stað því Singapúr heimsfræg fyrir dásamleg veitingahús af fjölbreyttasta tagi. Matargerðarlistin er oft bræðingur af því besta frá Kínverjum, Indverjum, malajum og jafnvel aröbum. Sumir segja að hvergi í heiminum sé betra að borða en í þessari borg. Einfaldasta og einna vinsælasta tegund matstaða í Singapúr kallast Hawker Centre. Þar eru borð og bekkir í miðrými en allt í kring matsölur. Gestir taka sér bakka og tína saman á hann mat og drykki sem þeir neyta við borðin í miðjunni. Þarna má fá gómsæta máltíð með stórum bjór fyrir 500-1000 íslenskar krónur. Á árbakkanum ekki langt frá Peninsula Excelsioris, er eitt helsta veitingahúsahverfi Singapúr, Clarke Quay. Sömuleiðis er ekki langt til Boat Quay. Og um alla borgina er fjölbreytt flóra veitingastaða sem gleður bragðkirtla vandlátra ferðamanna hvaðanæva að úr heiminum.

037. nóvember 2022Singapúr
Eftir morgunverð á hótelinu, kl. 9:00, er farið í kynnisferð um borgina. Singapúr er einstakur staður, mesta heimsborg Asíu, þar sem gífurlegur metnaður ríkir á öllum sviðum, enda er efnahagsástandið eins og best gerist á Vesturlöndum og velmegun augljós. Landrými er takmarkað og því mikið um háar, fallega hannaðar byggingar en þess vandlega gætt að skilja hvarvetna eftir spildur af upprunalegum frumskógi eyjarinnar á milli húsa, mörg hundruð græn svæði bæði stór og smá. Við byrjum á að skoða hverfi og byggingar frá nýlendutíma Breta, Krikketklúbbinn, Þinghúsið og Ráðhúsið. Þá er staldrað við í Merlion Park, við lónið Marina Bay, þar sem áður var umskipunarhöfnin, en skartar nú allt um kring stórfenglegum mannvirkjum. Í Chinatown, Kínahverfinu, er ævinlega líf og fjör. Þar tvinnast saman nýr og gamall tími á skemmtilegan hátt, hefðbundnar búðir, listiðnaður, veitinga- og kaffihús. Við heimsækjum svo stærsta Búddamusterið í hverfinu. Þessu næst er ekið eftir Orchard Road, þar sem einhverjar glæsilegustu verslunarhallir Asíu standa í röðum. Loks er heimsóttur einn frægasti grasagarður heims, til að skoða National Orchid Garden, brönugrasgarðinn fagra, sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er að finna 60 þúsund tegundir af brönugrösum. Eftir hádegi fer hver sinna ferða í Singapúr. Úr mörgu er að moða. Urmull af söfnum, útivistarsvæðum, áhugaverðum mannvirkjum, verslunarhverfum, veitingahúsum o.s.frv. Uppástungur: Fá sér „Singapore Sling kokteil“ á Raffles-hótelinu og/eða Lantern Bar á þaki Fullerton Bay Hotel, skoða Marina Sands Hotel, eina frægustu og dýrustu byggingu veraldar, fara upp á „skipið“, þar sem sundlaugin er, á toppi turnanna þriggja og horfa yfir borgina og höfnina. Í kjallara hótelsins er stærsta spilavíti Asíu. Í Singapúr er fjöldi góðra safna svo sem National Museum of Singapore, Asian Civilisations Museum, Peranakan Museum og Singapore Art Museum.

048. nóvember 2022Singapúr – Hanoi
Morgunverður kl. 6:00 á hótelinu og síðan ekið út á Changi-flugvöll þaðan sem haldið er með SQ192 kl. 9:15 til Hanoi og lent þar kl. 11:30. Starfsfólk EXO Travel tekur á móti hópnum í „Arrivals-salnum“ þar sem vegabréfsáritanir og stimplun passa fara fram. Séð verður um að koma okkur með hraði (fast track) gegnum landamæraeftirlitið. EXO-fólkið hefur útfyllt umsókn um vegabréfsáritun fyrir hvern og einn, en allir þurfa að skrifa undir umsóknirnar og afhenda auk þess eftirfarandi: 1) vegabréf ásamt „boðsbréfi“ sem þið fáið sent síðar 2) tvær passamyndir 4x6 sm 3) 25 Bandaríkjadali í reiðufé Svo bíður hópurinn þangað til starfsmennirnir koma aftur með alla passana og stimplaðar vegabréfsáritanir til að framvísa við landamæraverði. Starfsmennirnir aðstoða farþega síðan að taka farangur af færibandinu og hlaða á kerrur, en hver og einn verður að aka sínu góssi gegnum tollinn. Þar fyrir framan tekur staðarleiðsögumaðurinn á móti hópnum. Farangurinn fer í sérstakan bíl. Ekið á The Ann Hotel þar sem gist verður næstu 3 nætur. Ekkert er á sameiginlegri dagskrá þennan fyrsta dag í Hanoi, en hægt er að hvíla sig eftir langt flug, fara í laugina á hótelinu og skoða sig um í gömlu miðborginni þar sem hótelið stendur.

059. nóvember 2022Hanoi
Kl. 8.30, að loknum morgunverði, er lagt af stað í heils dags kynnisferð um Hanoi. Fyrst er haldið á Matvælamarkaðinn. Við göngum um þrönga ganga og ranghala þar sem ýmis forvitnileg matvara er seld, til að mynda lifandi froskar. Þarna er ævinlega iðandi mannlíf, borgarbúar að draga björg í bú. Þá er ekið að Ho Tay (Vesturvatni) og skoðað Búddahofið Tran Quoc sem byggt var á 6. öld e.Kr. Þá liggur leiðin á Víetnamska þjóðfræðisafnið þar sem fá má allgóða mynd af fjölbreyttum uppruna kynþátta og sögu víetnömsku þjóðarinnar í aldanna rás. Síðan er haldið að vatninu Hoan Kiem og skoðaður minnisvarðinn um Ly Thai To keisara sem gerði Hanoi að höfuðborg ríkis síns árið 1010. Að svo búnu er snæddur hádegisverður á ljómandi góðu veitingahúsi sem nefnist Koto. Eftir matinn er stutt ökuferð til hins fræga Musteris bókmenntanna sem var eini háskóli landsins frá 1076 og fram á 19. öld. Loks er farið í gönguferð um elsta borgarhverfi Hanoi þar sem í 36 þröngum götum má fá nasasjón af hefðbundnum lífsvenjum Víetnama. Gönguferðinni lýkur á markaðnum Hang Be. Síðast á dagskránni er svo Vatnsbrúðuleikhús sem er einstakt listform, iðkað í Norður-Víetnam. (M = morgunmatur, H=hádegisverður, K=kvölverður. Tilgreint hvaða máltíðir eru innifaldar á hverjum degi.)

0610. nóvember 2022Hanoi
Kl. 8.30, að loknum morgunverði, er lagt af stað í skoðunarferð um Hanoi. Þá er haldið til eins frægasta staðar borgarinnar sem er fangelsið Hoa Lo. Þar geymdu Frakkar félaga úr andspyrnuhreyfingunni um miðja 20. öld, en síðar, í Víetnamstríðinu á 7. áratugnum og fram til 1975, sátu þar aðallega bandarískir stríðsfangar, þeir sem sluppu lifandi þegar sprengjuflugvélar þeirra voru skotnar niður yfir Norður-Víetnam. Fólkinu í Hanoi var ekki sérlega hlýtt til Bandaríkjamanna, sem fleygðu meira magni af sprengjum yfir borgina og nágrenni hennar en sem nam öllum sprengjum sem allir stríðsaðilar notuðu í seinni heimsstyrjöldinni. Bandarísku flugmennirnir kölluðu Hoa Lo „Hanoi Hilton“. Næst er snæddur hádegisverður á góðum veitingastað sem heitir Wild Rice. Síðan er haldið til torgsins Ba Dinh þar sem Ho Chi Minh lýsti yfir sjálfstæði Víetnams árið 1945. Þaðan göngum við að húsinu sem Ho Chi Minh bjó í á árunum 1958 til 1969 og stýrði hreyfingunni sem hann lifði ekki að sjá vinna fullnaðarsigur yfir her Suður-Víetnam og Bandaríkjanna, árið 1975. Í grenndinni stendur svo Einnar súlu Búddahofið sem reist var árið 1049 og er meðal frægustu fornminja Víetnams. Þessari ferð lýkur um kl. 3 e.h. svo gott ráðrúm gefst til að skoða sig um á eigin spýtur eða njóta lífsins á annan hátt það sem eftir lifir þessa síðasta dags í Hanoi.

0711. nóvember 2022Hanoi - Hai Phong – Sigling hefst
Kl. 8.30 brottför frá hótelinu. Haldið til strandar, ekið um búsældarlegar sveitir og síðasta spölinn yfir nýja brú sem er sú lengsta í Suðaustur Asíu. Komið til hafnarbæjarins þangað sem við verðum sótt um kl. 11:30. Þar erum við boðin velkomin með tedrykkju í skála á hafnarbakkanum áður en haldið er með skipsbáti út að skemmtiferðasnekkjunni Orchid Cruise (sem áður hét Azalea Cruise) þar sem gist verður næstu tvær nætur. Þegar innskráningu er lokið og fólk hefur fengið sína einkakáetu með svölum, hefst siglingin um Lan Ha flóa, hluta af Halong flóa sem er eitt af undrum veraldar, og á heimsminjaskrá UNESCO. Fyrst er siglt að Da Chong eyju til að skoða vita sem Frakkar byggðu þar fyrir meira en hundrað árum. Við gæðum okkur á hádegisverðarhlaðborði meðan siglt er milli smáeyjanna á Con Vit svæðinu. Kalksteinsklettarnir sem gnæfa hvarvetna upp úr haffletinum eru tilkomumikil og heillandi sjón. Þetta svæði er tiltölulega ósnortið í samanburði við fjölfarnari hluta Halong Bay, því fáir skemmtiferðarbátar sigla enn sem komið er þessa leið, um Gia Luan svæðið sem tilheyrir Cat Ba þjóðgarðinum. Fyrst er skoðað svæðið þar sem „Dimmi og bjarti hellirinn“ er. Við látum fara vel um okkur á bambusbátnum sem flytur okkur að skoða þessa hella, leynidjásn Lan Ha flóa. Þá er farið í land á Cat Ba eyju og ekið í rútubíl til Trung Trang dropasteinshellisins sem er í djúpum dal í miðjum þjóðgarðinum, umlukinn skógi. Um kl 17:00 er siglt inn á mjög fáfarið svæði í Lan Ha flóa, vík sem nefnist Tra Bau. Þar þykir mörgum ljúft að synda í svölum, smaragðsgrænum sjónum. Síðan má njóta útsýnisins af þilfari snekkjunnar meðan sólin sest í Tonkin-flóa. Hægt er að fá matreiðslukennslu hjá yfirkokkinum eða nýta sér „sælustundartilboðin“ á barnum. Kl. 19:15 er borinn fram lúffengur veislumatur sem matbúinn er af færu fagfólki um borð og borinn fram í notalegu og rómantísku umhverfi. Eftir matinn er tilvalið að njóta flóastemmningarinnar uppi á efra dekki, reyna sig við að veiða smokkfisk eða horfa á kvikmynd í veitingasalnum. Einnig er hægt að panta sér nudd. (M, H, K)

0812. nóvember 2022Sigling um Lan Ha flóa
Kl. 6:30 er boðið upp á Tai Chi æfingar á sólardekki Azalea Cruise meðan sól rís úr sæ. Morgunsvalinn er hressandi. Morgunverður er borinn fram kl. 7:30 í veitingasalnum þaðan sem gott útsýni er yfir flóann. Og skipið siglir af stað. Klukkustundu síðar er farið í land í Viet Hai þorpi á Cat Ba sem er stærsta eyjan í flóanum. Hjólreiðaferð um regnskóg, dimm göng, heillandi landslag og hrísgrjónaekrur. Rafbílar eru til reiðu (ókeypis) fyrir þá sem heldur vilja aka en hjóla. Staldrað við í þorpinu til að slaka á. Við skoðum hús, byggt með gamla laginu, úr stráum, leir og bambus. Síðan förum við aftur um borð í Azalea-snekkjuna og höfum tíma til að fara í sturtu eða bað í káetunum meðan verið er að hafa til hádegisverðinn. Kl. 12:30 er svo hádegishlaðborð með alþjóðlegum mat meðan snekkjan siglir lengra inn í Lan Ha flóa. Hægt er að „fleygja sér“ svolitla stund áður en dagskrá eftirmiðdagsins tekur við. Kl. 14:30, meðan snekkjan siglir með okkur áleiðis til Apaeyjarsvæðisins, blasir við sjónum ströndin Cat Dua með hundruðum undurfagurra kalksteinsfjalla allt um kring. Og þessari dýrð getum við kynnst nánar með því að sigla um á kajökum, synda eða bara sóla okkur í fjörunni. Kl. 19:15 er snæddur ljúffengur kvöldverður og á eftir er upplagt að njóta stemningarinnar uppi á sólardekkinu þar sem er m.a. bar með alls kyns drykkjum.

0913. nóvember 2022Hanoi – Saigon
Kl. 6:15 er aftur boðið upp á hressandi og endurnærandi Tai Chi meðan flóinn skartar sinni morgunfegurð. Eftir það er morgunverður kl. 7:00 og kl. 7:45 gefst kostur á að fara á kajak. Kl. 8:30 er komið aftur um borð í Orchard og nú er tíminn til að taka saman pjönkur sínar og skrá sig út. Kl. 10:00 er borinn fram gómsætur dögurður meðan siglt er til hafnar. Um kl. 11:30 er komið í höfn þar sem heitir Tuan Chau Marina og stigið um borð í rútubílinn sem flytur okkur til Hanoi-flugvallar. Flogið með VN255 kl. 16:00 til Saigon og lent þar kl. 18:15. Ekið frá flugvelli til Grand Hotel í hjarta þessarar stærstu borgar Víetnam, með um níu milljónir íbúa. Grand Hotel er glæsilegt fimm stjörnu hótel sem stendur við suðurenda aðalgötunnar Dong Khoi sem á nýlendutíma Frakka hét Catinat og gengur enn undir því nafni í daglegu tali innfæddra, rétt eins og „Saigon“ er fólki munntamara en opinbera heitið „Ho Chi Minh City“ sem oft er skammstafað HCMC. Kvöldverður á vönduðu veitingahúsi sem heitir Chopstick. (M, dögurður, K)

1014. nóvember 2022Saigon
Kl. 8:30, að loknum morgunverði, er lagt af stað í skoðunarferð um þessa glæsilegu, gömlu höfuðborg Franska Indókína, sem gekk undir nafninu „París Austurlanda“. Fyrst er skoðuð frægasta bygging borgarinnar, Pósthúsið, sem líklega var teiknað af Marie-Alfred Foulhoux en er oft eignað Gustave Eiffel sem hannaði Eiffel-turninn. Pósthúsið var reist á árunum 1886–1891. Í grenndinni stendur Notre Dame dómkirkjan, einnig byggð af Frökkum í lok hluta 19. aldar. Farið í heimsókn í Gialong-höllina, sem hýsir Safn Ho Chi Minh borgar, og fræðst um stormasama sögu hennar. Gengið um „Le Loi“ götu og farið í heimsókn til listamanns sem sérhæfir sig í hefðbundnu ristuþrykki. Hádegisverður snæddur á glæsilegu veitingahúsi sem heitir Chateau. Þá er gamli markaður miðbæjarins skoðaður, rölt um stræti elsta borgarhlutans og tyllt sér niður til að fá sér hressingu á einhverju af hinum frægu, sjarmerandi kaffihúsum sem prýða staðinn. Að svo búnu er hægt að velja um að láta aka sér heim á hótel eða verða eftir á Ben Thanh markaðnum til að versla og sjá sig um. Aðeins um 10–15 mínútna akstur er heim á Grand Hotel frá markaðnum. (M, H)

1115. nóvember 2022Cu Chi göngin
Lagt af stað kl. 8:30 að loknum morgunverði í um rúmlega klukkustundar bílferð norður fyrir borgina að skoða hin frægu Cu Chi göng og eins konar safn mannvirkja og hergagna, eflaust merkilegustu minjar um Víetnam-stríðið sem hægt er að sjá í landinu. Leiðin liggur um fagrar sveitir. Til baka er farið á hraðbáti niður Saigon-ána. Ferðin tekur eina og hálfa klukkustund og báturinn lendir skammt frá hótelinu. Eftir hádegið er hægt að sjá sig um í borginni á eigin spýtur. Margt er að skoða í Saigon, til dæmis ekki fráleitt að bregða sér á Stríðsminjasafnið eða skoða Forsetahöll Suður Víetnam. Þá er ekki úr vegi að fá sér kaffi eða aðra hressingu á 52. hæð Bitexo, hæstu byggingar borgarinnar, þaðan sem útsýnið er einstakt. Um kvöldið gefst kostur á að kynnast hinum víðfræga víetnamska götumat og næturlífið í Saigon undir handleiðslu staðarleiðsögumanns okkar. Þessi ferð er utan dagskrár og ekki innifalin í verðinu. Hún verður nánar kynnt síðar. (M)

1216. nóvember 2022Saigon - Cai be – Can Tho
Kl. 8.30, að loknum morgunverði, er Grand Hotel Saigon kvatt og ekið áleiðis til Mekong-óshólmanna sem eru eitthvert rómaðasta gósenland Asíu. Engar ýkjur eru að þar drjúpi smjör af hverju strái. Eftir ósigur Frakka í orrustunni við Dien Bien Phu árið 1954, sem markaði endalok nýlenduveldis þeirra í Indókína, voru það þung spor fyrir margar franskar fjölskyldur að yfirgefa sveitirnar á Mekong-svæðinu sem í sumum tilfellum höfðu verið heimkynni þeirra kynslóðum saman, og enn í dag hugsa allmargir Frakkar til þessa „heimalands síns“ með sárum söknuði. Á leiðinni til óshólmanna er höfð viðkoma í Cao Dai kirkju, guðshúsi einstakra trúarbragða, eins konar samblands af taóisma, Búddisma og Konfúsíusarhyggju ásamt kristni og íslam, sem margar milljónir manna í Víetnam aðhyllast. Við ökum fyrst til bæjarins Cai Be og fáum þar prívat-júnku til að sigla á um ána. Fyrst heimsækjum við fræga fljótandi markaði nærri bænum. Eftir að komið er aftur á þurrt land skoðum við ýmiss konar heimaframleiðsla svo sem á hrískökum, hrísgrjóna-poppkorni og kókoshnetu-brjóstsykri. Við siglum áfram milli sígrænargrænna og fagurra Mekong-óshólmanna eftir margslungnu neti ótal þveráa, sunda og síkja. Hádegismatur er borinn fram fram á veitingastað á einni eyjunni áður en við förum aftur um borð í júnkuna og siglum í rólegheitum áfram til Vinh Long og virðum á leiðinni fyrir okkur ljúft landslag og friðsælt líf sveitafólksins á Óshólmunum. Síðan er farið í land af júnkunni og stigið upp í bílinn sem flytur okkur til Can Tho sem er mikil myndarborg, höfuðstaður Mekong-svæðisins. Þar gistum við eina nótt, á Victoria Can Tho hótelinu. (M, H)

1317. nóvember 2022Can Tho – Chau Doc
Can Tho er háskólaborg sem stendur á mótum þriggja vatnsfalla í landfræðilegri miðju Óshólmanna. Þetta svæði var á miðöldum hluti af heimsveldi Kmera (sem við eigum eftir að kynnast betur í Siem Reap) og enn í dag er verulegur hluti íbúanna af kmerakyni, þ.e. af kambódísku bergi brotinn. Farið kl. 7:30, að loknum morgunverði, á bátum að heimsækja fljótandi markaðinn í Cai Rang. Síðan er siglt um mörg og margvísleg síki þar sem krökkt er af bátum fólks sem kemur úr nærliggjandi sveitum að selja afurðir sínar, aðallega grænmeti og ávexti. Þetta er litríkt mannlíf. Að lokinni þessari kynnisferð er hótel Victoria kvatt og haldið til Chau Doc sem er drjúgur spölur, næstum þriggja tíma akstur. Við skráum okkur inn á Victoria Chau Doc hótelið á bakka Mekong-fljóts, þar sem við gistum næstu nótt, og snæðum hádegisverð þar. Eftir hádegi er farið að skoða „fljótandi hús“ þar sem meðal annars er stunduð fiskirækt sem er gífurlega mikilvægur og ört vaxandi atvinnuvegur á þessum slóðum. (M, H)

1418. nóvember 2022Chau Doc – Phnom Penh
Að loknum morgunverði er haldið af stað með hraðbáti frá bryggju Victoria-hótelsins upp Mekong-fljót. Stutt er til landamæra Kambódíu frá Chau Doc. Lent er og dvalið um stund við landamærastöðina þar sem við þurfum að fá stimpil í passana. Þar verðum við að hafa eftirfarandi tiltækt: vegabréfin útfyllta umsókn um áritun eina passamynd 33 Bandaríkjadali (í seðlum) Um 5 klst. ánægjuleg sigling er með hraðbátnum til Phnom Penh. Á leiðinni getum við virt fyrir okkur forvitnilegt mannlífið á bökkunum Mekong-fljóts. Afbragðs tækifæri til myndatöku. Komið til höfuðborgar Kambódíu um kl. 13. Borgin stendur á mótum stórfljótanna Mekong og Tonlé Sap. Að lokinni innskráningu á Royal Palace Gate Hotel, sem er frábært 5 stjörnu hótel, rétt hjá konungshöllinni í miðri borginni. Góður tími gefst til að skoða sig um eða njóta lífsins við sundlaug hótelsins. Phnom Penh var álitin ein fegursta borg Franska Indókína. En á tímum ógnarstjórnar Rauðu Kmeranna 1975–1979 voru nær allir íbúarnir reknir út úr borginni með fádæma harðýðgi og hnepptir í þrælkunarvinnu í sveitum. Undanfarna áratugi hefur samt gengið býsna vel að hleypa nýjum krafti í borgarlíf Phnom Penh og er sérlega gaman að ganga þar um göturnar, kíkja á markaði og setjast niður á veröndum kaffihúsa eða góðum veitingastöðum sem enginn skortur er á, einkum á árbakkanum ekki langt frá frá hótelinu okkar. Þetta er heillandi borg, í senn vestræn og asísk, með breiðgötum og háum trjám í röðum meðfram þeim, fögrum pagóðum og glæsilegum byggingum frá nýlendutímanum. (M)

1519. nóvember 2022Phon Penh
Kl. 8.30, að loknum morgunverði, er farið að skoða Konungshöllina sem fullgerð var árið 1866, á nýlendutíma Frakka. Við hlið hallarinnar stendur Silfurpagóðan sem dregur nafn af fimm tonnum af skínandi silfri sem lögð voru í gólfið. Upphaflega nafnið er Wat Prakeo sem þýðir Musteri hins smaragðsgræna Búdda. Í hádeginu er snæddur dæmigerður kmeramatur á víðfrægu veitingahúsi sem nefnist Malis. Matreiðslumeistarinn er einn helsti stjörnukokkur Kambódíu, Luu Meng. Eftir hádegið fræðumst við um þann hrylling sem kalla mætti helför kambódísku þjóðarinnar, þegar Pol Pot og Rauðu kmerarnir hans myrtu á tæpum fjórum árum 2,5–3 milljónir landa sinna. Fyrst er heimsótt safn í gömlu skólahúsi, Tuol Sleng, þar sem starfrækt var skelfilegasta fangelsi Rauðu kmeranna, S-21. Því næst höldum við til aftökustaðarins illræmda í Choeung Ek sem umheimurinn kallar Killing Fields upp á ensku. Þar létu ótal margir lífið og er hægt að sjá þarna ýmsar minjar um fórnarlömbin og örlög þeirra, fjöldagrafir og „stúpu“ fulla af hauskúpum. Eftir heimsóknina á þennan óhugnanlega stað er haldið aftur heim á hótelið, og þykir þá kannski einhverjum mál að fá sér hressingu. (M, H)

1620. nóvember 2022Phon Penh – Siem Reap
Kl. 8.40, að loknum morgunverði og eftir að skrá okkur út af Royal Palace Hotel, höldum við út á flugvöll Phnom Penh, fljúgum kl. 11:30 með K6 109 til Siem Reap og lendum þar kl. 12:25. Ekið til bæjarins sem stendur við hlið þess makalausa svæðis þar sem á síðari hluta miðalda stóð stórborg með um milljón íbúum, meðan mannfjöldi helstu borga Evrópu fór varla yfir tvö hundruð þúsund. Þetta var höfuðstaður stórveldis Kmera sem um alllangt skeið náði langt út fyrir það svæði sem nú heitir Kambódía. Angkor Thom var stjórnarsetrið og Angkor Wat aðalmusterið, stærsta guðshús sem fundist hefur í Suðaustur Asíu. Siem Reap er einkar aðlaðandi 150 þúsund manna bær, fallega staðsettur á árbökkum. Þar er ánægjulegt, eftir könnun á fornminjum að morgni, að ganga um eftir hádegið og skoða fagrar byggingar, markaði og litríkt götulíf. FCC Angkor by Avani, giststaðurinn okkar, er í gangfæri við miðbæinn þar sem aðalmarkaðurinn og flest veitingahúsin og krárnar eru, ekki síst við „Pub Street“. Hótelið er sérlega glæsilegt, húsið fyrrum landstjórasetur Frakka, og þar er ljómandi góð sundlaug og ýmislegt annað sem hjálpar fólki að njóta lífsins. Þennan fyrsta dag í Siem Reap er boðið upp á kvöldverð á frábæru veitingahúsi sem nefnist Viroth‘s. (M, K)

1721. nóvember 2022Ankor Wat – Ta Prohm
Kl. 8:30, eftir morgunverð, er byrjað á að skoða frægasta mannvirki Kambódíu, musterið Angkor Wat, sem reist var á ríkisstjórnarárum Suryavarmans II konungs á fyrri hluta 12. aldar. Angkor Wat mun vera ætlað að tákna fjallið Meru, bústað guðanna. Að innan eru veggir musterisins þaktir höggmyndum og lágmyndum sem endurspegla goðsagnir hindúa og sömuleiðis hetjusagnir af hernaði Suryavarmans konungs. Þá skreyta tvö þúsund Apsara-dansmeyjar musterið. Angkor Wat prýðir nú þjóðfána Kambódíu þar sem hofið þykir táknrænt fyrir þjóðarsálina. Þá er heimsótt annað hof, Ta Prohm, reist nokkrum áratugum á eftir Angkor Wat af Jayavarman VII konungi, undir aldamótin 1200. Ólíkt öðrum fornum byggingum á svæðinu, sem fallin voru í gleymskunnar dá og höfðu nánast orðið frumskóginum að bráð, var ákveðið að leyfa þessu búddahofi að vera áfram nánast í því ástandi sem það fannst í til að sýna hvernig náttúran getur leikið mannanna verk. Ta Prohm hefur verið náttúruleg leikmynd nokkurra ævintýrakvikmynda, þ.á.m. The Tomb Raider með Angelinu Jolie. Snæddur hádegisverður á Mali‘s Siem Reap (útibú frá Mali‘s Phnom Penh) áður en ekið er aftur heim á hótelið. Síðdegið frjálst. Um kvöldið er þeim sem kæra sig um gefinn kostur á sérstakri ferð til að smakka mat og drykk að hætti innfæddra. (M, H)

1822. nóvember 2022Angkor Thom – Bayon
Kl. 8:30, að loknum morgunverði, er farið að skoða hina fornu höfuðborg kmeraveldisins, Angkor Thom. Hún er umlukt átta metra hárum múr sem myndar rétthyrning. Farið er inn um hið mikilfenglega Suðurhlið, úr steini með höggmyndum af fílum og fjórum ógnarstórum andlitum. Beggja vegna hliðsins eru 54 guðir eða djöflar sem halda í hina heilögu Naga-slöngu. Síðan er haldið til Bayon-hofsins sem stendur nákvæmlega í miðpunkti Angkor Thom. Þessi fagra bygging frá 12. öld skartar 54 turnum sem tákna 54 skattlönd hins mikla stórveldis Kmera. Hádegisverður snæddur á The Square 24 áður en haldið er heim á hótel. Síðdegið frjálst en þeir sem vilja eiga völ á skipulagðri kvöldferð. (M,H)

1923. nóvember 2022Siem Reap – Singapúr
Eftir að snæða morgunverð og skrá sig út af Hotel FCC Angkor by Avani er ekið út á flugvöll og haldið með SQ 163 til Singapúr. Farangurinn skráður alla leið til Íslands. Lent í Singapúr kl. 14:15. Þar sem Lundúnaflugið er ekki fyrr en undir miðnætti förum við gegnum útlendingaeftirlitið inn í Singapúr. Á flugvellinum bíður okkar rútubíll og staðarleiðsögumaður. Við höfum ágætan tíma til að skoða okkur betur um í Singapúr og við notum tímann meðal annars til að heimsækja hinn fræga stað Gardens by the Bay og fagurt umhverfi lónsins mikla, þar sem Singapore River rennur í hafið, Um kvöldið er svo ekið aftur út á Changi-flugvöll og haldið áfram heim á leið með SQ 322 til London Heathrow kl. 23:45. Ljúf þjónusta starfsfólks Singapore Airlines og góðar veitingar gera okkur langt heimflugið léttara.

2024. nóvember 2022Singapúr – Keflavík
Lent á Heathrow-flugvelli kl. 05:55 og síðan með FI 451 kl. 12:05 til Íslands. Lending í Keflavík kl. 15:15. Þessi ferð er gerð út í samstarfi við ferðaskrifstofuna Söguferðir sem annast fjármál og tryggingar. Ferðaskrifstofan VITA gefur út farseðlana og EXO Travel hefur milligöngu um alla ferðaþjónustu í Víetnam og Kambódíu. Örnólfur hannaði ferðina og skipulagði, valdi áfangastaði, gististaði og ferðartilhögun. Hann verður fararstjóri hópsins og alltaf tiltækur ef eitthvað kemur upp á. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru líka alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.

Gisting
- The Peninsula Excelsior★★★★Singapúr
- The Ann Hotel★★★★Hanoi
- The Orchid Cruise★★★★★Sigling
- Grand Hotel★★★★★Saigon
- Victoria Can Tho★★★★Can Tho
- Victoria Chau Doc★★★★Chau Doc
- Royal Palace Gate Hotel★★★★★Phnom Penh
- FCC Angkor by Avani★★★★★Siem Reap
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Allt flug, einnig innanlandsflug í Víetnam og Kambódíu. Gisting með morgunverði Máltíðir sem getið er í lýsingu (M, H og K) H=hádegisverður, K=kvöldverður Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu Allur akstur í Asíu, í loftkældum langferðabílum Íslensk fararstjórn og stöðug viðvera Örnólfs Enskumælandi staðarleiðsögumenn Allur aðgangseyrir í kynnisferðum Bátsferðir sem getið er í ferðarlýsingu Ferð með hraðbáti frá Chau Doc til Phnom Penh Þóknun fyrir hraðafgreiðslu vegabréfsáritunar í Víetnam
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar Vegabréfsstimpilgjald $25 við komu til Víetnams og $ 33 við komu til Kambódíu Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra, c.a. $5 á dag. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Singapúr, Víetnam og Kambódía — 5.–24. nóvember 2022.
