← Allar ferðir

Marokkó og máraslóðir Andalúsíu

13. sept – 1. okt 2022

19 dagarLengd ferðar
15 áfangarFerðaáætlun
595.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 0113. september 2022Keflavík – Malaga

    Flogið með SK 596 kl.19:35 frá Keflavík til Kaupmannahafnar, lent á Kastrup 15:35 og síðan haldið áfram kl. 16:40 með SK583 til Málaga og lent kl. 20:30. Ekið til Algeciras, rétt við Gíbraltar, og gist þar á Hotel Reina Cristina (4****)..

  2. 0214. september 2022Malaga – Fes

    Eftir morgunverð er ekið til Tarifa (23 km) og siglt kl. 10.00 með hraðferju yfir Gíbraltarsund til Tangier. Siglingin tekur innan við klukkustund, Síðan ekið til Fes (4 1⁄2 klst) með viðkomu í hafnarbænum Larache þar sem snæddur er hádegisverður. Kvöldverður á Hotel Heritage Boutique Luxe í Fes þar sem gist er næstu tvær nætur.

  3. 0315. september 2022Fes

    Kynnisferð um Fes, hina fornu höfuðborg Marokkó og helstu miðstöð menningar landsins. Þarna er líklega elsti háskóli í heimi sem enn starfar. „Medínan“, umlukt múrum, er á minjaskrá UNESCO og almennt talin best varðveitta miðaldaborg veraldar í íslömskum sið. Hún er iðandi af lífi, fjölskrúðugri verslun og handverki sem skemmtilegt er að skoða. Eftir hádegisverð á hótelinu gefst tækifæri til að sjá sig um í miðborg Fes.. Kvöldverður á Hotel Heritage.

  4. 0416. september 2022Fes – Marrakech

    Haldið af stað til Marrakech að loknum morgunverði í lengstu dagleið ferðarinnar. Ekið yfir Mið-Atlasfjöll um Ifrane og Azrou og loks Benimellal þar sem snæddur verður hádgegisverður á Restaurante Paris. Kvöldverður og gisting á Hotel Kenzi Rose Garden (5*****) í miðborg Marrakech næstu fjórar nætur.

  5. 0517. september 2022Marrakech

    Að loknum morgunverði er farið i kynnisferð um borgina. Marrakech sigraði fyrir nokkrum árum í atkvæðagreiðslu Tripadvisor um besta áfangastað í víðri veröld. Segja má að í Marrakech hafi maður annan fótinn í nútímanum og hinn í fornöld. Gamli bærinn minnir á Þúsund og eina nótt en nýi borgarhlutinn, steinsnar frá, er stórglæsilegur með frönskum breiðgötum og formfögrum mannvirkjum í rauðbrúnum jarðarlit í stíl við forna múrinn sem umlykur borgina. Skammt fyrir sunnan gnæfa svo Atlasfjöllin með snævi þakta tinda sem ramma inn þessa tilkomumiklu mynd. Skoðuð eru ýmis sögufræg mannvirki svo sem Koutoubia-moskan, grafhýsi Saadi-konungsættarinnar, Bahia-höllin og síðast en ekki síst Jema el Fna, eitt magnaðasta torg í víðri veröld. Eftir hádegisverð á hótelinu ræður hver sinni dagskrá. Marrakech er ævintýraheimur. Það er til dæmis makalaus upplifun að ganga um í litríku og glaðværu völundarhúsi medínunnar.

  6. 0618. september 2022Marrakech

    Eftir morgunverð er farið í kynnisferð um borgina og m.a. skoðaðir Majorelle-garðarnir undurfögru og íslamskt lærdómssetur (medersa) frá 14. öld kennt við Ben Youssef, hið stærsta í Marokkó. Hádegisverður snæddur á týpísku veitingahúsi, Al Baraka. Eftir hádegið ræðu hver sínum ferðum.

  7. 0719. september 2022Marrakech

    Frjáls dagur í Marrakech.

  8. 0820. september 2022Marrakech – Rabat

    Að loknum morgunverði er hótelið kvatt og haldið til Casablanca (244 km) sem er langstærsta borg Marokkó. Ekið um miðborgina til að berja það markverðasta augum, ekki síst moskuna sem kennd er við Hassan II, föður núverandi konungs, sem er stærsta íslamska guðshús í heimi að undanskildri moskunni í Mecca. Hádegisverður snæddur í Casablanca og síðan er haldið áfram til Rabat (92 km), höfuðborgar landsins. Skráð sig inn á Hotel Belere (4****), sem stendur í hjarta borgarinnar, og kvöldverður snæddur þar.

  9. 0921. september 2022Rabat – Tangier

    Eftir morgunmat og útskráningu af hótelinu er farið í stutta skoðunarferð um Rabat áður en haldið er áfram til Tangier (251 km). Hádegisverður snæddur á leiðinni, á fiskveitingahúsinu Casa Garcíaí fallegum strandbæ sem nefnist Asilah. Kvöldverður og gisting á Hotel Hilton Garden Inn (4****) í Tangier þessa síðustu nótt í Marokkó.

  10. 1022. september 2022Tangier – Sevilla

    Að loknum morgunverði á hótelinu er haldið með hraðferjunni kl. 9:00 (10 á spænskum tíma) aftur yfir Gíbraltarsund til Tarifa og síðan ekið sem leið liggur til Sevilla (207 km), höfuðborgar Andalúsíu. Hádegisverður snæddur á leiðinni. Skráð sig inn á Hotel NH Plaza de Armas (4****) Sevilla, þar sem gist verður næstu tvær nætur. Kvöldverður á hótelinu.

  11. 1123. september 2022Sevilla

    Eftir morgunmat er farið í kynnisferð um borgina. Helstu staðir eru svæði Spænsk-amerísku sýningarinnar 1929, Gullturninn, Garður Maríu Lovísu, Ameríkutorg, Murillo-garðarnir, Jerez-hliðið, Santa Cruz hverfið og Dómkirkjan fræga, sú stærsta á Spáni. Að loknum hádegisverði á týpískum, andalúsískum veitingastað, El Cabildo, eru hinar fornu konungshallir mára skoðaðar og síðan farið í útsýnissiglingu á fljótinu Gadalquivír sem rennur gegnum miðja borgina. Kvöldverður á hótelinu. Hægt er að panta fyrir þá sem vilja sæti á stórkostlega flamenkóskemmtun í Patio Andaluz del Embrujo.

  12. 1224. september 2022Sevilla – Granada

    Eftir morgunverð er Hótel Melía Sevilla kvatt og ekið áleiðis til Cordoba (141 km). Þar var helsta stjórnarsetur og menningarmiðstöð máraveldisins Al-Andalus sem drottnaði yfir meginhluta Pýreneaskaga frá því snemma á 8. öld og fram á miðja 13. öld. Heimsóknin hefst með því að ganga yfir Puente Romano, Rómversku brúna sem lögð var yfir Guadalquivir á 1. öld f. Kr. og skoða frægasta mannvirki Cordoba, La Mezquita, helsta guðshúsi máranna. Þar til moska Hassans II reis í Casablanca var La Mezquita næststærsta moska í heimi. Því næst er gengið um nærliggjandi götur gamla borgarhlutans, m.a. gyðingahverfið, Barrio Judío, og litið á bænahús gyðinga, La Sinagoga. Snæddur er hádegisverður á frægu veitingahúsi, Mesón La Mezquita, áður en haldið er áfram til Granada (204 km). Kvöldverður á Hotel Barceló Granada Congresos (5*****) í hjarta þessarar dásamlegu borgar.

  13. 1325. september 2022Granada

    Eftir morgunverð er skoðað frægasta mannvirki Spánar, Alhambra, konungshöll máraríkisins sem hélt velli tvær og hálfa öld eftir að kristnir herir sigruðu Cordoba og Sevilla. Einnig er gengið um hina fögru skrúðgarða mára á Generalife-hæðinni. Eftir hádegið er farið um miðbæinn og m.a. heimsótt Konunglega kapellan ásamt grafhýsi kaþólsku konungshjónanna, Ferdínands Aragóníukonungs og Ísabellu drottningar af Kastilíu, sem sameinuðu ríki sín, ráku burt márana árið 1492 og gerðu Spán að heimsveldi eftir landvinningana í Ameríku. Kvöldverður á hótelinu. Eftir það gefst þeim sem vilja kostur á að skoða gamla márahverfið, Albayzin, og fara á sígaunaflamenkó.

  14. 1426. september 2022Granada – Marbella

    Eftir morgunverð er hótelið í Granada kvatt og haldið áleiðis til Malaga en höfð viðdvöl í bænum Fuente Vaqueros á hinni grösugu sléttu La Vega til að heimsækja fæðingarbæ Federicos Garcia Lorca og skoða húsið þar sem þetta ástsælasta skáld Spánar sleit barnsskónum. Síðan er ekið til Marbella (180 km) og skráð sig inn á Aparthotel Monarque Sultán sem er glæsilegur og aðlaðandi gististaður á „Gullnu mílunni“ svokölluðu, eftirsóttasta svæðinu í Marbella. Stutt er niður á baðströndina og sömuleiðis eru miðbærinn og höfnin í Marbella í gangfæri. Þarna verður dvalið næstu 5 nætur. Á hótelinu er auðvelt að láta fara vel um sig. Þar eru bæði sundlaugar og „spa“. Innifalið í hóteldvölinni er hálft fæði, þ.e. morgunverður og kvöldverður. Þeir sem vilja hafa eitthvað fleira fyrir stafni en að njóta hvíldar og makinda í Marbella hafa um margt hnýsilegt að velja, t.d. að skreppa til Malaga (59 km) og skoða Picasso-safnið í fæðingarbæ meistarans og kannski fá sér tapas á torgum og útiskenkjum í sundum miðbæjarins. Eða skjótast til fjallabæjarins Ronda (36 km) sem er einn tilkomumesti staður Spánar. Ronda er vagga nautaatsins og þar er elsti nautahringur Spánar. Þá eru aðeins 73 km til Gíbraltar frá Marbella. Örnólfur þekkir Costa del Sol býsna vel, bjó þar árum saman, og er hann fús að leiðbeina fólki og aðstoða við hvaðeina.

  15. 151. október 2022Malaga – Keflavik

    Að loknum morgunverði er hótelið í Marbella kvatt og haldið til Malagaflugvallar Flogið með SK4680 til Oslóar. Lent í Noregi kl. 15:15 og haldið áfram til Keflavíkur kl. 17:20 með SK4785 og Lent þar kl. 18:10.

Gisting

  • Hotel Reina Cristina★★★★Gíbraltar
  • Hotel Heritage Boutique Luxe ★★★★★Fes
  • Hotel Kenzi Rose Garden★★★★★Marrakech
  • Hotel Belere★★★★Rabat
  • Hotel Hilton Garden Inn★★★★Tangier
  • Hotel NH Plaza de Armas★★★★Tarifa
  • Hotel Barceló Granada Congresos★★★★★Granada
  • Aparthotel Monarque Sultán★★★★Marbella

Verð

Verð á mann595.000 kr
Staðfestingargjald80.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli140.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flug, allar ferðir á landi og sjó sem greint er frá í ferðaáætluninni, gisting og máltíðir sem þar eru upp taldar, allur aðgangseyrir, staðarleiðsögumenn, sérstakur fylgdarleiðsögumaður í Marokkó og annar á Spáni, fararstjórn Örnólfs allan tímann, Hálft fæði á Hotel Monarque Sultán í Marbella síðustu dagana, þ.e. a. s. morgunmatur og kvöldverður. „Gastrómían“ á Sultan fékk háa einkunn hjá hópunum sem dvöldu þar í mars og apríl. Við áttum ljúfar stundir þar í matsalnum í góðum félagsskap yfir gómsætum réttum, elduðum af kunnáttu og ástriðu. sem er ekki slæm blanda.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Marokkó og máraslóðir Andalúsíu — 13. sept – 1. okt 2022.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 595.000 kr

Senda fyrirspurn