Ferðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
014. febrúar 2019Indland
Indland er ævintýri líkast. Næststærsta og næstfjölmennasta ríki veraldar, iðandi af andstæðum og furðufyrirbærum. Öllu ægir saman – fólki af ólíkum kynþáttum og trúarbrögðum, auðlegð og örbirgð, því forna og því nýja. Indland er ein helsta vagga heimsmenningarinnar. Bókmenntahefð nær langt aftur fyrir Krists burð og til eru ennþá eldri fornminjar. Landið er í hraðri efnahagsþróun, en þótt stjórnskipan sé veraldleg litast daglegt líf fólks mjög af trúarhefðum. Óvíða á jarðarkringlunni geta ferðamenn kynnst eins spennandi og litríku mannlífi og á Indlandi. Hálfsmánaðar lúxusferð á einhverjum besta tíma ársins til fjögurra af þeim helstu stöðum á Indlandi sem fólk dreymir um að sjá og upplifa – Delhi, Agra, Goa og Mumbai. Einungis gist á stórglæsilegum fimm stjörnu hótelum.

024. febrúar 2019Nýja-Delhi
Flogið frá Keflavík með British Airways til Heathrow kl. 13:45, lent 16:50 og haldið áfram til Nýju Delhi með sama flugfélagi kl. 18:50. Lent í Delhi kl. 8:50 (5. febrúar). Ekið til ITC Maurya í Nýju Delhi sem er eitt af glæsilegastu hótelum Indlands. Engin skipulögð kynnisferð þennan fyrsta dag, en sendiherra Íslands á Indlandi, Guðmundur Árni Stefánsson, býður hópnum til móttöku kl. 17–19.

036. febrúar 2019Gamla og Nýja Delhi
Kl. 9:00 – Skoðunarferð um Nýju og Gömlu Delhi. Eftirfarandi staðir verða heimsóttir: Qutab Minar – hæsti „minaret“ turn (múslímski bænaturn) veraldar, reistur árið 1193. Lotus hofið – bænahús Bahaia, undurfögur bygging, reist árið 1986. Grafhýsi Humayuns Mógúlakeisara, reist 1570, sem sagt er að sé kveikjan að Taj Mahaj. Indlandsboginn (India Gate), minnismerki um fallna hermenn Indlands. Forsetahöllin og þinghöllin skoðaðar tilsýndar. Rauða virkið (Red Fort eða Lal Qila), gríðarmikil höll úr sandsteini sem reist var á bakka árinnar Yamuna á árunum 1639–1648 og var stjórnarsetur íslömsku mógulakeisaranna um tveggja alda skeið. Farið í lystitúr í „rickshaw“ um götur hins aldagamla markaðar Chandni Chowk. Jama Masjid, stærsta moska Indlands, reist 1644–1656 af mógúlakeisaranum Shah Jahan. Forgarðurinn tekur 25 þúsund manns. Raj Ghat, bálfararstaður og minnismerki um landsföður Indlands, Mahatma Gandhi. Gist á Hotel Clarks Shiraz.

047. febrúar 2019Agra
Að loknum morgunverði, kl. 6:30, er haldið með langferðabíl til Agra. Aksturstími um 4 klst. Kl. 10:30 er kynnisferð um Agra í fylgd með innlendum leiðsögumanni. Skoðað verður m.a.: Taj Mahal, „Höll ástarinnar“, frægasta byggingardjásn Indlands, byggt af Mógúlakeisaranum Shah Jahan sem grafhýsi í minningu eiginkonu hans, Mumtaj Mahal. Agra virkið sem stendur á bakka Yamuna ár í miðri borginni, reist á árunum 1565–1573. Moti Maszid (Perlumoskan) – moska byggð úr hvítum marmarara. Shish Mahal (Glerhöllin) og Itmad-Ud-Daulah – fyrsta grafhýsið sem gert var eingöngu úr marmara og markar því tímamót í arkitektúr mógúlatímabilsins. en áður höfðu allar byggingar verið gerðar úr rauðum sandsteini. Veggina skreyta ægifagrar myndir. Gist á Hotel Clarks Shiraz.

058. febrúar 2019Nýja-Delhi
Kl. 9:00 er ekið frá Agra til Nýju Delhi með viðkomu í Fathepur Sikri. Gist aftur á Hotel ITC Maurya.
069. febrúar 2019Goa
Kl. 12:00 er ekið út á flugvöll í Delhi og flogið til Goa kl. 14:40. Lent í Goa kl. 17:15 og ekið á Hotel Lemeredian Goa, sem er eitt glæsilegasta hótelið á Goa-ströndinni þar sem dvalið verður næstu fimm daga.

0711. febrúar 2019Goa – kynnisferð
Kl. 9:00 – Kynnisferð um Goa í fylgd með innlendum leiðsögumanni. Meðal þess sem skoðað verður: Dona Paula og Miramar ströndin. Panaji, höfuðborg Goa. Gamlar kirkjur frá nýlendutíma Portúgala. Mangueshi hindúahofið, tileinkað Shiva. Heimsókn á kryddbúgarð.
0814. febrúar 2019Mumbai
Útskráning af Hotel Lemeredian fyrir kl. 12 á hádegi. Kl. 13:00 er haldið af stað út á Goa-flugvöll og flogið til Mumbai kl. 17:05. Lent í Mumbai kl. 18:35 og ekið á Hotel Trident Nariman Point, einn glæsilegasta gististað borgarinnar, og gist þar tvær síðustu nætur ferðarinnar.

0915. febrúar 2019Mumbai
Kl. 9:30 – Skoðunarferð um Mumbai með innlendum leiðsögumanni. Meðal þess sem skoðað verður: Dhobi Ghat – Einn frægasti „þvottastaður“ á nýlendutíma Breta. Þarna er þvottur þveginn undir berum himni, m.a. mestallur þvottur hótelanna í Mumbai. Mani Bhavan – höfuðstöðvar Mahatmas Gandhis í Mumbai í 17 ár, frá 1917–1934, þaðan sem hann skipulagði þau friðsamlegu mótmæli og andspyrnu sem leiddu til sjálfstæðis Indlands 1947. The Prince of Wales Museum – Rúmlega aldargömul stórgllæsileg bygging sem geymir eitt helsta safn Indlands af listmunum og forngripum. Umhverfis safnið er fagur blóma- og pálmagarður. Victoria Terminus / Chhatrapati Shivaji Terminus – Sögufræg járnbrautarstöð á heimsminjaskrá UNESCO, eins og reyndar allmargir þeirra staða sem heimsóttir eru í þessari ferð. Marine drive – 3,6 km löng C-laga steypt breiðgata með sex akreinum sem fylgir lögun víkurinnar við ströndina í Suður-Mumbai. Gateway of india – Þetta glæsilega hlið var reist árið 1911 í tilefni af landgöngu Georgs V. Bretakonungs og Viktoriu drottningar hans. Hliðið er 25 metra hátt, gert úr blágrýti. The Hanging Gardens – Frægir skrúðgarðar þar sem myndir af ýmsum dýrum eru mótaðir í limgerðin. Þessir garðar draga dám af görðunum í Babýlóníu sem Forn-Grikkir töldu meðal sjö undra veraldar.

1016. febrúar 2019Mumbai
Frjáls dagur í Mumbai, fram að brottför. Við höfum herbergin aðeins til hádegis, nema fólk nái samkomulagi við hótelið um annað. Hótelið geymir farangur fram að brottför. Kl. 22:00 er ekið út á Bombay-flugvöll.
1117. febrúar 2019Heimferð
Flogið kl. 02:15 með British Airways og lent á Heathrow 06:55. Flogið heim með British Airways og lent í Keflavík kl. 12:20.
Verð
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Indland — 4.–17. febrúar 2019.

