← Allar ferðir

Grænhöfðaeyjar og Lissabon

3. – 17. febrúar 2025

Ferðin er uppseld
15 dagarLengd ferðar
18 áfangarFerðaáætlun
498.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 013. febrúar 2025SÓL, SAGA OG MÚSÍK

    Grænhöfðaeyjar eru svalar eyjar í hitabeltinu sem koma á óvart. Sú menning sem þar hefur skapast er sérstök blanda af Afríku og Evrópu. Tónlistin sem gerði Cesária Évora heimsfræga er alltumlykjandi á eyjunum með mjúkum ryþma og seiðandi söng. Hjálpsemi og vingjarnlegt viðmót eyjaskeggja er rómað og gestkomandi upplifa "no stress" lífstílinn sem einkennir samfélagið. Cabo Verde er laust við þá spillingu og ættbálkaerjur sem ríkja annars í Afríku. Glæpatíðni er afar lág og ferðamenn eru velkomnir alls staðar. Þjóðarrétturinn kallast Cachupa, hljómar næstum eins og kjötsúpa. Rétturinn er ljúffeng blanda af baunum, grænmeti, kjöti eða fiski. Veitingastaðirnir bjóða flestir upp á matseðil þar sem allir geta fundið eitthvað sér til hæfis. Grænhöfðaeyjar hafa ekki verið i alfaraleið þar til nýlega. Eyjarnar eru ört vaxandi ferðamannastaður enda veðurblíða þar með eindæmum, eins og betri útgáfa af Tenerife. Þar fer hiti örsjaldan yfir 30°C og enn sjaldnar undir 20°C. Við dveljum á stærstu eyjunni, Santiago, í höfuðborginni Praia. Borgin er í örum vexti en gamli miðbærinn, Plateau, býr yfir fornum sjarma. Fallegar byggingar frá nýlendutíma Portúgala eru áberandi. Fjölmarga veitingastaði og verslanir er að finna í Plateau sem er á sléttri hæð nálægt höfninni.

  2. 023. febrúar 2025Lissabon

    Flogið frá Keflavík með OG694 kl. 15.50 og lent í Lissabon kl. 20.15. Gist á Hotel Fenix Urban í miðborg Lissabon.

  3. 034. febrúar 2025Lissabon – Grænhöfðaeyjar

    Eftir morgunverð á hótelinu halda fararstjórar kynningu á því helsta sem verður boðið upp á í ferðinni. Þennan dag getur hver farið sinna ferða, en fararstjórarnir bjóða upp á tveggja tíma gönguferð um miðborgina sem endar með púrtvínssmakki á Praça do Comércio. Englendingar segja að púrtvín "ferðist" ekki sérlega vel, þess vegna sé það langbest í heimalandinu Portúgal. Ef veður verður óhagstætt til útivistar verður farið í hið víðfræga jarðskjálftasafn "Museo do terramoto de Lisboa." Brottför frá hótelinu kl. 17.15. Flogið með TP1543 til Praia kl. 20.45 og lent þar kl. 00:05 Gist á Hotel Oasis Praiamar næstu 9 nætur.

  4. 045. febrúar 2025Praia

    Gamli miðbær Praia, Plateau, skoðaður með staðarleiðsögumanni. Plateau er að stofni til frá 16. öld. Þar er forsetahöllinn, margar stjórnarráðsbyggingar, fjöldi verslana, veitingahúsa og líflegur borgarmarkaður þar sem konurnar ráða ríkjum. Kvöldmatur á elsta veitingastað borgarinnar, Café José da Rosa (valkvætt). Þar verða tónleikar utandyra með nokkrum af bestu músíköntum Cabo Verde.

  5. 056. febrúar 2024Kynnisferð til Tarrafal

    Næst stærsta borgin á Santiago eyju er Tarrafal, en þangað er u.þ.b. tveggja tíma akstur frá Praia. Á leiðinni verða skoðaðar alræmdar fangabúðir sem fasistastjórnin í Portúgal lét reisa 1939 að þýskri fyrirmynd þar sem pólitískir fangar voru geymdir. Gengið um bæinn og endað á ströndinni sem er sú besta á eyjunni. Þar eru margir góðir veitingastaðir og við snæðum hádegisverð á einum þeirra.

  6. 067. febrúar 2025Kvöldverður og tónleikar á Quintal da Música

    Engin skipulögð dagskrá þennan dag en fararstjórar munu benda fólki á áhugaverða staði í nágrenninu til að skoða eða til að slaka á. Um kvöldið er völ á kvöldverði og tónleikum á "Mekka" morna-tónlistarinnar, Quintal da Música, þar sem Cesária Évora var skærasta stjarnan og söng margsinnis um árabil. Tónleikar fylgja á eftir kvöldverðinum og eru innifaldir fyrir gesti veitingastaðarins.

  7. 078. febrúar 2025Serra Malagueta þjóðgarðurinn

    Kynnisferð í þjóðgarðinn Serra Malagueta er þekktur fyrir mikla náttúrufegurð og stóbrotið útsýni um dali og tinda. Í heiðskíru veðri sést meir að segja til eldfjallaeyjarinnar Fogo sem er í 55 km. fjarlægð. Auðveld hálftíma gönguferð við allra hæfi er í boði þar sem fágæt flóra og forvitnilegt dýralíf ber fyrir augu. Snætt verður nesti því fátt er um veitingastaði í þjóðgarðinum.

  8. 089. febrúar 2025Hvíldardagur á ströndinni

    Við Praia eru tvær baðstrendur með ágætum veitingastöðum þar sem hægt er að hafa það verulega notalegt. Sjórinn er tær og volgur, ströndin er vel vöktuð og merki segja til um hvar öruggt er að synda.

  9. 0910. febrúar 2025Ciudad Velha

    Dagsferð til Ciudad Velha (Gömlu borgarinnar) sem er sögulega merkilegur staður. Þarna varð til fyrsta byggð Evrópumanna sunnan Sahara. Upp á hæðinni fyrir ofan þessa litlu borg er mikilúðlegt virki sem var reist á 17. öld til varnar sjóræningjum. Þar stöðvum við fyrst í heimsókn okkar til Ciudad Velha. Á aðaltorgi borgarinnar var þrælamarkaður, enda var þrælaverslun ábatasamasta atvinnugreinin og undirstaða efnahags Cabo Verde í um þrjár aldir. Við göngum elstu götuna, Rua Banana, skoðum rústir fyrstu kirkjunnar og snæðum hádegisverð í einum af hinum frábæru veitingastöðum við ströndina.

  10. 1011. febrúar 2025Frjáls dagur – hið ljúfa líf

    Sól og strönd. Fyrir þá sem vilja kíkja í verslanir þá er aðalverslunarhverfið í göngufæri við hótelið. Þar í nágrenninu er þinghúsið og margar opinberar byggingar sem eru nýlegar og athygliverður arkitektúr.

  11. 1112. febrúar 2025Frjáls dagur

    Sól og strönd. Dinner með tónlistaratriði á Hotel Oasis Praiamar (valkvætt).

  12. 1213. febrúar 2025Flug til Lissabon

    Útskráning af Hotel Oasis Praiamar og brottför til flugvallar fyrir hádegi. Flogið með TP1542 kl. 13.25 og lent í Lissabon kl. 18.35. Gist á Hotel Fenix Urban næstu 4 nætur.

  13. 1314. febrúar 2025Lissabon

    Skoðunarferð um borgina með staðarleiðsögumanni. Þeir sem kjósa geta snætt saman kvöldverð og notið tónlistar á Fama d'Alfama, einum helsta fado-staðnum í gamla bænum. Þar gefur að heyra frábæra lifandi tónlist og veitingastaðurinn er fínn.

  14. 1415. febrúar 2025Lissabon

    Frjáls dagur í Lissabon. Að kynnast borginni upp á eigin spýtur er hægt að gera ýmsum hætti. Fótgangandi, með strætó, neðanjarðarlest, rickshaw, en helst með sporvagni sem hlykkjast um þröngar göturnar í gamla bænum, framhjá kirkjum og kastalanum sem trónir yfir borginni.

  15. 1516. febrúar 2025Sintra

    Kynnisferð til Sintra, sem er lítil borg rétt norðan við Lissabon. Sintra er ævaforn og sérdeilis fögur borg. Hún er fræg fyrir fallegan arkitektúr, skínandi hallir og kastala, fagrar strendur, glæsilega garða og útivistarsvæði. Við förum um miðbæinn með staðarleiðsögn og fræðumst um söguna og fólkið í bænum. Þarna hefur verið byggð í meir en sjö þúsund ár. Sintra hefur til margra ára verið valin besta og vinsælasta borgin til búsetu í Portúgal.

  16. 1617. febrúar 2025Heimferð

    Útskráning af Hotel Fenix Urban um hádegi og ferðatöskur settar í geymslu fram að brottför til flugvallar kl. 18.00. Flogið heim með OG695 kl. 21.15 og lent í Keflavík kl. 01.50.

  17. 17Fararstjórar

    Hjónin Magnús R. Einarsson og Kristín Jóhannsdóttir eru þaulreyndir fararstjórar og sannkallaðir heimshornaflakkarar. Þau eru heimavön á Grænhöfðaeyjum og í Portúgal og Magnús, sem er landsþekktur útvarps- og tónlistarmaður, hefur myndað sterk tengsl við margt fremsta tónlistarfólk eyjanna. Kristín og Magnús búa í Vestmannaeyjum þar sem Kristín stýrir gosminjasafninu Eldheimum.

  18. 18Praktískar upplýsingar

    Staðfestingargjald er óafturkræft. Gætið þess að hafa forfallatryggingu, sem er reyndar hluti af ferðatryggunum sem fylgja kreditkortum. Fullnaðaruppgjör er 60 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi. Fararstjórar: Magnús R. Einarsson og Kristín Jóhannsdóttir.

Gisting

  • Hotel Fenix Urban ★★★★Lissabon
  • Hotel Oasis Atlantico Praiamar ★★★★Praia, Grænhöfðaeyar

Verð

Verð á mann498.000 kr
Staðfestingargjald100.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli90.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flug og flugvallarskattar. Gisting með morgunverði á fjögurra stjörnu hótelum, 5 nætur í Lissabon og 9 nætur í Praia. Allur akstur milli flugvalla og hótela. Allar skoðunarferðir með rútu skv. ferðalýsingu. Máltíðir sem tilgreindar eru í skoðunarferðum. Allur aðgangseyrir að stöðum sem heimsóttir eru í kynnisferðum. Íslensk fararstjórn og viðvera allan tímann. Staðarleiðsögn enskumælandi sérfræðinga.

Ekki innifalið

Ferða- og forfallatrygging. Þjórfé handa staðarleiðsögumönnum. Þáttaka í valfrjálsum viðburðum svo sem: Museo do terramoto de Lisboa, kvöldverður og tónleikar á Quintal da Música, dinner með tónlistaratriði á Hotel Oasis Praiamar 12. febrúar, Fama d'Alfama.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Grænhöfðaeyjar og Lissabon — 3. – 17. febrúar 2025.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 498.000 kr

Senda fyrirspurn