← Allar ferðir

Grænhöfðaeyjar og Lissabon

12. – 26. febrúar 2026

Ferðin er uppseld
15 dagarLengd ferðar
19 áfangarFerðaáætlun
598.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 0112. febrúar 2026Sól, saga og músík

    Grænhöfðaeyjar eru svalar eyjar í hitabeltinu sem koma afar ánægjulega á óvart. Saga landsins er stórmerkileg og sú menning sem þar hefur skapast er heillandi blanda af Afríku og Evrópu. Veðurfarið er eins og best verður á kosið, hitinn fer sjaldan upp fyrir 30° og enn sjaldnar undir 20°, auk þess sem hafgolunnar nýtur ævinlega við. Grænhöfðaeyjar voru portúgölsk nýlenda allt fram til 1975 þegar þær hlutu sjálfstæði, sögðu skilið við Evrópu og sameinuðust Afríku. Það er því vel við hæfi að ramma ferðina inn með dvöl í Lissabon, einhverri fegurstu og mest spennandi borg Suður-Evrópu.

  2. 0212. febrúar 2026Flug til Lissabon

    Flogið frá Keflavík með FI578 kl.16.00 og lent í Lissabon kl.20.20. Gist á afar sjarmerandi „boutique“ hóteli í miðborginni, Hotel Lisboa Plaza (4*).

  3. 0313. febrúar 2026Lissabon – Grænhöfðaeyjar

    Eftir morgunverð á hótelinu halda fararstjórar kynningu á því helsta sem verður boðið upp á í ferðinni. Þennan dag getur hver farið sinna ferða, en fararstjórarnir bjóða upp á 2 klst. gönguferð um miðborgina sem endar með púrtvínssmakki á Praça do Comércio. Englendingar halda því fram að púrtvín ferðist ekki sérlega vel, þess vegna sé það langbest í heimalandinu Portúgal og hér gefst kjörið tækifæri til að sannreyna þá kenningu. Brottför frá hótelinu kl.17.15. Flogið með TP1543 til Praia kl.20.45 og lent þar kl.00.05. Gist á Hotel Oasis Praiamar (4*) næstu 5 nætur. (M)

  4. 0414. febrúar 2026Praia

    Þennan fyrsta dag í höfuðborginni Praia verður gamli miðbærinn Plateau, sem er að stofni til frá 16. öld, skoðaður með staðarleiðsögumanni. Þar er forsetahöllinn, margar stjórnarráðsbyggingar, fjöldi verslana og veitingahúsa, og líflegur borgarmarkaður þar sem konurnar ráða ríkjum. Tvær baðstrendur með ágætum veitingastöðum eru í næsta nágrenni við hótelið þar sem hægt er að hafa það verulega notalegt. Sjórinn er tær og volgur, ströndin vel vöktuð og merki segja til um hvar öruggt er að synda. Þetta fyrsta kvöld í Praia verður sameiginlegur kvöldverður með tónlistaratriði frá heimamönnum, en óhætt er að fullyrða að tónlistin sé Grænhöfðingjum nánast í blóð borin. (M, K)

  5. 0515. febrúar 2026Tarrafal

    Næst stærsta borgin á Santiago-eyju er Tarrafal, í um 2ja klst. akstursfjarlægt frá Praia. Á leiðinni verður komið við í Serra Malagueta þjóðgarðinum og einnig skoðaðar alræmdar fangabúðir, sem fasistastjórnin í Portúgal lét reisa 1939 að þýskri fyrirmynd, þar sem pólitískir fangar voru geymdir. Gengið um Tarrafal og endað á ströndinni sem er sú besta á eyjunni. Þar eru margir góðir veitingastaðir og við snæðum hádegisverð á einum þeirra. (M, H)

  6. 0616. febrúar 2026Listamannahverfið og Quintál da Música

    Þennan dag er boðið upp á gönguferð um listamannahverfið í Praia, Terra Branca. Eitt helst einkenni Grænhöfðaeyja eru stórar og litríkar veggmyndir sem hvarvetna prýða mannvirki. Um kvöldið er völ á kvöldverði og tónleikum á "Mekka" morna-tónlistarinnar, Quintal da Música, þar sem Cesária Évora var á sínum tíma skærasta stjarnan og söng reglulega, þegar hún var ekki á tónleikaferðalögum um heimsbyggðina. Tónleikar fylgja á eftir kvöldverðinum og eru innifaldir fyrir gesti veitingastaðarins. (M)

  7. 0717. febrúar 2026Ciudad Velha

    Dagsferð til Ciudad Velha (Gömlu borgarinnar) sem er sögulega merkur staður. Þarna varð til fyrsta byggð Evrópumanna sunnan Sahara. Upp á hæðinni fyrir ofan þessa litlu borg er mikilúðlegt virki sem var reist á 17. öld til varnar sjóræningjum, þar sem við stoppum fyrst í heimsókn okkar til Ciudad Velha. Á aðaltorgi borgarinnar var þrælamarkaður, enda var þrælaverslun ábatasamasta atvinnugreinin og undirstaða efnahags Cabo Verde í um þrjár aldir. Við göngum elstu götuna, Rua Banana, skoðum rústir fyrstu kirkjunnar og snæðum hádegisverð í einum af hinum frábæru veitingastöðum við höfnina, áður en við höldum aftur heim til Praia. Eftirmiðdagur er frjáls en fararstjórar geta bent fólki á áhugaverða staði að skoða eða til að slaka á þennan síðasta dag okkar í Praia. Fyrir þá sem vilja kíkja í verslanir þá er aðalverslunarhverfið í göngufæri við hótelið. (M, H)

  8. 0818. febrúar 2026Praia – Mindelo

    Útskráning á Hotel Oasis Praiamar. Við kveðjum Praia og Santiago og fljúgum með flugfélagi Grænhöfðaeyja í u.þ.b. 50 mín. norður til borgarinnar Mindelo, sem er á eynni São Vicente. Innskráning á Oasis Porto Grande í Mindelo (4*) þar sem við dveljum næstu fjórar nætur. Mindelo er afskaplega falleg, lítil borg, fræg fyrir ríkulegt tónlistar- og menningarlíf sitt og stærstu og glæsilegustu kjötkveðjuhátíð Grænhöfðaeyja sem ár hvert laðar tugþúsundir að til að taka þátt í gleðinni. (M)

  9. 0919. febrúar 2026Mindelo og São Vicente

    Kl. 9:00, eftir morgunverð á hótelinu, er lagt af stað í gönguferð um miðbæ Mindelo með staðarleiðsögumanni. Skoðaðir verða áhugaverðir staðir í borginni, s.s. hin litríka Avenida Marginal, bæjar- og fiskmarkaðurinn og Belém turninn. Þá er farið með rútu spottakorn til bæjarins Lazareto, þaðan sem er stórkostlegt útsýni, m.a. til fjallsins Monte Cara sem er eitt af 7 náttúruundrum Grænhöfðaeyja. Næst liggur leiðin til Doze Voltas, sem er einskonar völundarhús úr sandi í uppþornuðum vatnsfarvegi við rætur Monte Cara. Þar er ævintýralegt að ganga um og mælt með að vera í lokuðum skóm. São Pedro er sjarmerandi lítið fiskimannaþorp sem komið verður við í áður en haldið er aftur til Mindelo. Síðast á dagskrá er heimsókn í Veðurfræðisafnið, en skoðunarferðinni líkur um kl. 13. (M)

  10. 1020. febrúar 2026Santo Antão

    Dagsferð til nágrannaeyjarinnar Santo Antão. Siglt í býtið með ferju frá Mindelo til Santo Antão, sem margir telja fegursta Grænhöfðaeyja. Þetta er þægileg klukkutíma sigling í svalandi hafgolunni. Stigið á land í Porto Novo þaðan sem keyrt er upp í fjöllin. Vegurinn liggur alla leið upp á tind mikilfenglegs fjallgarðs í um 1.800 m hæð, þaðan sem er óviðjafnanlegt útsýni til allra átta. Þá er haldið niður á norðurhluta eyjarinnar þar sem við tekur gjörólíkt landslag, með iðgrænum dölum fullum af sykurreyr, bananatrjám og öðrum hitabeltisgróðri. Snæddur hádegisverður á veitingahúsi í einum þessara frjósömu dala, auk þess sem komið er við í fiskimannaþorpinu Ponta de Sol og á fleiri áhugaverðum stöðum, áður en siglt er til baka til Mindelo síðdegis. (M, H)

  11. 1121. febrúar 2026Frjáls dagur í Mindelo

    Í miðbæ Mindelo er fjöldi afbragðs veitingastaða og lifandi tónlist ómar á hverju götuhorni. Rétt við miðbæinn, í göngufæri við hótelið, er falleg baðströnd en einnig er ágætur sundlaugargarður á hótelinu. (M)

  12. 1222. febrúar 2026Flug til Lissabon

    Útskráning af Hotel Oasis Porto Grande og brottför til flugvallar fyrir hádegi. Flogið með TP1558 kl.13.30 og lent í Lissabon kl.18.30. Gist á Hotel Lisboa Plaza (4*) næstu 4 nætur. (M)

  13. 1323. febrúar 2026Frjáls dagur í Lissabon og Fado tónleikar

    Frjáls dagur í Lissabon. Hægt er að kynnast borginni upp á eigin spýtur með fjölbreyttum hætti – fótgangandi, með neðanjarðarlest, tuk-tuk, en ekki síst með sporvögnum, sem hlykkjast um þröngar göturnar í gamla bænum. Þau sem kjósa geta snætt saman kvöldverð og notið tónlistar á Fama d'Alfama, einum helsta fado-staðnum í gamla bænum. Þar er framúrskarandi lifandi tónlistarflutningur og veitingastaðurinn er alveg glerfínn. (M)

  14. 1424. febrúar 2026Tuk-tuk ferð um miðbæinn

    Skoðunarferð um borgina með tuk-tuk. Þessi ferðamáti er bæði skemmtilegur og þægilegur. Farið verður um gamla miðbæinn og m.a. skoðaður kastalinn frægi sem gnæfir yfir borgina, dómkirkjan, þjófamarkaðurinn o. fl. markvert. (M)

  15. 1525. febrúar 2026Frjáls dagur og kveðjukvöldverður

    Þennan síðasta dag ferðarinnar er hver á sínum vegum en fararstjórar eru boðnir og búnir að leiðbeina og ráðleggja um hvaðeina, hvort sem fólk vill versla, heimsækja söfn eða annað. Um kvöldið snæðir hópurinn svo saman á brasilísku steikhúsi í nágrenni hótelsins. (M, K)

  16. 1626. febrúar 2026Heimferð

    Útskráning af Hotel Lisboa Plaza um hádegi og ferðatöskur settar í geymslu fram að brottför til flugvallar kl.18.00. Flogið heim með FI579 kl.21.20 og lent í Keflavík kl.01.50. (M)

  17. 17Fararstjórar

    Hjónin Magnús R. Einarsson og Kristín Jóhannsdóttir eru þaulreyndir fararstjórar og sannkallaðir heimshornaflakkarar. Þau eru heimavön á Grænhöfðaeyjum og í Portúgal og Magnús, sem er landsþekktur útvarps- og tónlistarmaður, hefur myndað sterk tengsl við margt fremsta tónlistarfólk eyjanna. Kristín og Magnús búa í Vestmannaeyjum þar sem Kristín veitir gosminjasafninu Eldheimum forstöðu.

  18. 18Nokkrir fróðleiksmolar um Grænhöfðaeyjar

    Grænhöfðaeyjar er 10 eyja klasi í Atlandshafinu undan strönd Vestur-Afríku. Við heimsækjum þrjár eyjar, sem hver um sig hefur sín sérkenni – Santiago geymir fjölda sögulegraa minja og höfuðborgina Praia, São Vicente er mikil menningareyja þar sem árlega er haldin stórkostleg kjötkveðjuhátíð og Santo Antão er einstök náttúru- og útivistarparadís. Morna-tónlistin sem Cesária Évora gerði heimsfræga, er alltumlykjandi á Grænhöfðaeyjum, með sínum mjúka ryþma og seiðandi söng. Við búum svo vel að fararstjórarnir hafa myndað mikil og góð tengsl við helstu músíkanta Grænhöfðaeyja og tónlistarunnendur eiga því gott í vændum. Hjálpsemi og vingjarnlegt viðmót Grænhöfðingja er rómað og gestkomandi upplifa "no stress" lífstílinn sem einkennir samfélagið. Grænhöfðaeyjar eru lausar við þá spillingu og ættbálkaerjur sem ríkja annars í Afríku, glæpatíðni er afar lág og ferðamenn eru velkomnir alls staðar. Þjóðarrétturinn kallast Cachupa, hljómar næstum eins og kjötsúpa. Rétturinn er ljúffeng blanda af baunum, grænmeti, kjöti eða fiski. Grænhöfðaeyjar er eldfjallasvæði og mynduðust á svipaðan hátt og Ísland. Eina virka eldstöðin er á eyjunni Fogo, en þar gaus síðast árið 2014. Gjaldmiðill Grænhöfðaeyja er Escudos. Verðlag er okkur vesturlandabúum afar hagstætt, sem dæmi má nefna að leigubílaferð innanbæjar í Praia, sama hversu stutt eða langt er ekið, kostar eiginlega alltaf það sama, í kringum 200–300 kr. Fjölbreytt og ríkuleg tónlistarupplifun er eitt af því sem einkennir þessa ferð, bæði á Grænhöfðaeyjum og í Lissabon. Annar fararstjóranna, Magnús R. Einarsson, er að auki landsþekktur tónlistarmaður og ferðast aldrei langt án hljóðfæris. Það er því nokkuð öruggt að gripið verði í gítar þegar tilefni gefst og jafnvel blásið til samsöngs.

  19. 19Praktískar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir ferðadagsetningar. Staðfestingargjald er óafturkræft nema ferðaskrifstofa þurfi að hætta við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart Evru, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, en hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Fararstjórar eru Magnús R. Einarsson og Kristín Jóhannsdóttir.

Gisting

  • Hotel Lisboa Plaza★★★★Lissabon
  • Hotel Oasis Praiamar★★★★Praia
  • Oasis Porto Grande★★★★Mindelo

Verð

Verð á mann598.000 kr
Staðfestingargjald100.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli80.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flug og flugvallarskattar. Gisting með morgunverði á fjögurra stjörnu hótelum, 5 nætur í Lissabon og 9 nætur á Grænhöfðaeyjum. Allur akstur milli flugvalla og hótela. Allar skoðunarferðir með rútu skv. ferðalýsingu. Máltíðir sem tilgreindar eru í ferðalýsingu. Allur aðgangseyrir að stöðum sem heimsóttir eru í kynnisferðum. Bátsferð frá São Vicente til Santo Antão. Íslensk fararstjórn og viðvera allan tímann. Staðarleiðsögn enskumælandi sérfræðinga.

Ekki innifalið

Ferða- og forfallatrygging. Þjórfé handa staðarleiðsögumönnum. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þáttaka í valfrjálsum viðburðum svo sem: Kvöldverður og tónleikar á Quintal da Música í Praia. Kvöldverður og tónleikar á Fama d'Alfama í Lissabon.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Grænhöfðaeyjar og Lissabon — 12. – 26. febrúar 2026.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 598.000 kr

Senda fyrirspurn