




Balí, Kómodó og Flores
15. mars – 3. apríl 2027
Ferðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
0115. mars 2027Flug til Balí
Lagt af stað frá Íslandi með FI318 til Óslóar kl.07.50 og lent á Gardemoen flugvelli kl.11.35. Haldið áfram með EK160 kl.14.00 og lent í Dubaí kl.23.55. Síðasti flugleggurinn er með EK368 kl.03.25. Farangursheimild í öllum flugum ferðarinnar er 30kg innrituð taska og 7kg handfarangurstaska (cabin).
0216. mars 2027Úbúd
Lent á Denpasar-flugvelli á Balí kl.16.30. Ekið til Úbúd og skráð sig inn á ARMA Resort, þar sem dvalið verður fyrri hluta ferðarinnar. ARMA er einhver fegursti og notalegasti gististaður í Úbúd, en sá bær er höfuðstaður hindúamenningarinnar á Balí. Úbúd hefur mest seiðmagn allra staða á eyjunni, þar sem auðvelt er að njóta margvíslegra lystisemda og bæta jafnframt einhverju nýju í reynslubankann á hverjum degi. Í gríðarstórum garði ARMA, sem unun er að spássera um, hefur maður hvarvetna fyrir augum samspil frjálsrar náttúru og heillandi listfengis mannlegrar sköpunar. Í þessu umhverfi ilmar allt af fegurð og góðum smekk. Á ARMA er m.a. stórkostlegt listasafn, Agung Rai Museum of Art (ARMA), sem hefur tvívegis hlotið verðlaun sem besta listasafn Indónesíu. Dvalargestir hafa ótakmarkaðan aðgang að listasafninu. Agung Rai og kona hans, eigendur ARMA, veita börnum og ungu fólki tækifæri til að þroska hæfileika sína og njóta tilsagnar fremsta listafólks Úbúd í myndlist, tónlist, Balí-dansi o.fl. án endurgjalds. Þannig láta þau samfélagið njóta þeirrar velgengni sem þau hafa uppskorið af áratuga starfi sem þau hófu með tvær hendur tómar. Hjónin njóta gífurlegra vinsælda og virðingar á Balí. Þau eru miklir vinir Örnólfs og bjóða Íslendingahópnum ævinlega til glæsilegrar kvöldverðarveislu í útileikhúsi sínu í miðjum garðinum, með hljóðfæraslætti og dansatriðum.

0317. mars 2027Úbúd
Að loknum morgunverði býður Agung Rai, eigandi ARMA, hópinn velkominn og gefur okkur örlitla hugmynd um þá lífssýn og fagurfræði sem heillað hefur heimsbyggðina og gert Balí að einum eftirsóttasta áfangastað veraldar. Um kvöldið er snædd sameiginleg máltíð á einum mest sjarmerandi veitingastað Úbúd, Café Wayan. (M, K)

0418. mars 2027Kynnisferð – Úbúd og nágrannabæir
Lagt af stað að loknum morgunverði, kl. 9 að heimsækja áhugaverða staði í Úbúd. Aðeins spölkorn frá ARMA er Apaskógurinn helgi (Holy Monkey Forest), sem er friðaður griðastaður fyrir stórt samfélag makakí-apa og nokkur forn hindúa-musteri, m.a. „Dauðahofið mikla“ Pura Dalem Agung, tileinkað guðinum Shiva. Síðan er ekinn hringur um miðbæ Úbúd til að glöggva sig á staðnum og því næst heimsótt sölugallerí starfandi myndlistarmanna, en Úbúd er mesti listamannabærinn á Balí. Þá er haldið suður til steinsmíðabæjarins Batubulan þar sem tækifæri gefst til að sjá steinsmiði að störfum og skoða höggmyndir og styttur. Næst liggur leiðin um bæ þar sem nær allir íbúar fást við gull- og silfursmíðar og hafa gert mann fram af manni um aldir. Við heimsækjum stórt silfursmíðaverkstæði þar sem einnig er hægt að kaupa skartgripi. Þá er tekið hús á fjölskyldu í bænum Batuan til að kynnast dæmigerðri húsaskipan og tilhögun sem einkennir lífshætti og fornar hefðir sem fylgt er vandlega enn í dag. Þessu næst er haldið til mestu tréskurðarbæja Balí, Mas og Kemenuh, þar sem hægt er að sjá handverksmenn við iðju sína og skoða stórkostlegt gallerí með stórum og smáum gripum, afrakstri þessa listiðnaðar sem gengið hefur í arf frá kynslóð til kynslóðar gegnum aldirnar. Hádegisverður er snæddur á veitingastaðnum Dewa Malen, snoturri sveitakrá við iðgrænan hrísgrjónaakur. Síðasti viðkomustaðurinn í þessari ferð er dansskóli Agung Istri Wirati sem er einn virtasti kóreógraf Balí og dóttir frægustu Balí-dansmeyjar síðustu aldrar, Raka Rasmi. Hún kennir ungu fólki í garði hallarinnar Puri Kanginan í Peliatan, skammt frá ARMA. Nemendurnir stíga m.a. Legong-dans fyrir okkur, en sá dans þykir þokkafyllstur allra Balí-dansa. (M, H)

0519. mars 2027Frjáls dagur í Úbúd
Í Úbúd er margt að sýsla, urmull af galleríum, listmunabúðum, kaffi- og veitingahúsum. Hótelskutlan, sem er gestum að kostnaðarlausu, gengur frá ARMA upp í miðbæinn nokkrum sinnum á dag, auk þess sem auðvelt er að semja um ferðir á öðrum tímum. Örnólfur er fús að ráðleggja fólki við val á veitingastöðum og aðstoða við borðapantanir. (M)
0620. mars 2027Kynnisferð – Norður til fjalla
Lagt af stað kl. 9 að loknum morgunverði og ekið til bæjarins Tampaksiring. Þar er heimsótt frægasta vatnshof Balí, Pura Tirta Empul, þangað sem eyjarskeggjar flykkjast á tyllidögum til andlegrar hreinsunar og uppljómunar. Hópnum gefst kostur á að þvo af sér allar syndir í hinu helga uppsprettuvatni og hljóta að því loknu blessun hindúaprests við sérstaka athöfn. Þessu næst er haldið upp á fjallgarðinn mikla þar sem upp úr gnæfa tindar eldfjalla sem ná allt að rúmlega 3.000 metra hæð. Á leiðinni er stoppað á búgarðinum Cantik þar sem ræktað er kaffi af ýmsum tegundum, te, kakó og fjölmargar aðrar nytjajurtir, meðal annars engifer, ginseng og ótal kryddtegundir. Gestum er boðið að prófa framleiðsluna, þ.á.m. að smakka hið fræga Luwak- eða „kattaskítskaffi“, sem er dýrasta kaffi í heimi. Loks er ekið norður til Kintamani og snæddur hádegisverður í hlíðinni, þaðan sem undurfagurt útsýni er yfir Batur-vatn, sem er gamall, risastór gígur, og til eldfjallanna beggja vegna vatnsins. Landslagið á bakaleiðinni til Úbúd er einnig tilkomumikið og við stoppum m.a. í bænum Tegallalang til að skoða hrísgrjónaakra í bröttum suðurhlíðum fjallanna, fræðumst um fornt og hugvitsamlegt áveitukerfi Balí-búa sem nefnist SUBAK og fleira varðandi búskap á eynni. (M. H)

0721. mars 2027Frjáls dagur í Úbúd
Engin skipulögð dagskrá er þennan dag, en líkt og ævinlega er Örnólfur fús að liðsinna og ráðleggja fólki um hvaðeina. (M)
0822. mars 2027Kvöldverðarboð og Kecak
Frjáls dagur í Úbúd, en um kvöldið er farið á Kecak-sýningu í bænum Besdulu, hjá elsta hópnum sem iðkar þá sérkennilegu og áhrifamiklu söng- og danslist. Aðeins hálftíma akstur er til Bedulu frá ARMA. Eftir sýninguna er borinn fram girnilegur balískur kvöldverður á veitingastað Fílahellisins, Goa Gajah. Kórfélagar sjá um allan akstur og skila okkur aftur heim á ARMA. (M, K)

0923. mars 2027Flores / Frjáls dagur í Úbúd
Þau sem fara í ferðina til eyjanna Flores og Kómodó skrá sig út af ARMA fyrir hádegi. Hægt er að geyma farangur á ARMA og Ayu, aðstoðarkona okkar á Balí, sér um að koma honum yfir á hótelið í Sanúr. Brottför til flugvallar verður tilkynnt síðar en ráðgert er að koma til Labuan Bajo á Flores síðla dags. Þangað er aðeins rúmlega klukkutíma flug frá Balí. Gist næstu tvær nætur á Hotel Meruorah Komodo, stórglæsilegu 5* hóteli sem stendur á hafnarbakkanum í Labuan Bajo, vestast á eynni Flores. Eftir innskráningu á hótelið er heimsóttur fiskmarkaður bæjarins sem staðsettur er rétt hjá og þar er slegið upp grillveislu og gætt sér á ljúffengu sjávarfangi. (M, K) Þau sem halda kyrru fyrir í Úbúd hafa sína hentisemi, hvort sem fólk vill nýta daginn til að skoða sig um eða versla, eða hafa það notalegt á ARMA Resort. Það er t.d. starfrækt prýðileg heilsulind á ARMA þar sem hægt er að panta sér nudd og margvíslegar heilsu- og líkamsmeðferðir. (M)

1024. mars 20272026-10-13 Kómódó / Heilsað upp á heimafólk í Úbúd
Morgunverður eldsnemma á Hotel Meruorah og síðan haldið af stað með einkahraðbáti til Komódó að skoða drekana frægu sem kenndir eru við þá eyju. Drekar þessir eru stærstu skriðdýr veraldar og eru af ævafornum ættstofni. Margt fleira er að sjá á siglingunni til og frá Komódó. Sums staðar er farið í land og færi gefst á að baða sig í sjónum. Hádegisverðarnesti er borið fram á bátnum. Komið aftur til Labuan Bajo upp úr miðjum degi. Kvöldið frjálst. Í Úbúd gefst fólki kostur á að fara í ferð með Ayu og kynnast nánar lífsháttum innfæddra, m.a. á heimilum þeirra. (M, H)

1125. mars 2027Sanúr
Útskráning á ARMA í Úbúd og Ayu fylgir hópnum til Sanúr. Innskráning á Grija Santrian Resort, sem er frábært hótel á besta stað í þeim ljúfa strandbæ. Á Flores er útskráning af Hotel Meruorah Komodo fyrir hádegi. Síðan haldið til flugvallar með stuttu stoppi á matvælamarkaði Lanuan Bajo og svo flogið aftur til Balí. Komið til Sanúr fyrir kvöldmatartíma og skráð sig inn á Grija Santrian, þar sem sá farangur sem skilinn var eftir í Úbúd bíður eigenda sinna. (M)

1226. mars 2027Sanúr
Eftir morgunverð á Griya Santrian fara þau sem vilja í göngutúr með Örnólfi til að glöggva sig á mikilvægum stöðum í nágrenninu. Staðsetning hótelsins er eins og best verður á kostið, það er alveg við fjöruborðið og sömuleiðis steinsnar frá miðbæ Sanúr. (M)

1327. mars 2027Kynnisferð til Vestur-Balí
Kl. 15.00 er kynnisferð til Vestur Balí. Þessi ferð er farin um eftirmiðdag til að njóta sólarlagsins við Indlandshaf. Fyrst er komið við á batíkverkstæði í höfuðborginni Denpasar en síðan ekið norður til Mengwi sem var eitt voldugasta konungsríki Balí á 18. og 19. öld. Þar skoðum við Taman Ayun (Fögrugarða), hof og skrúðgarða konungs, sem er meðal fegurstu staða á Balí. Að því búnu er haldið til strandar til að upplifa sólarlagið við frægasta sjávarhof eyjunnar, Tanah Lot, sem er óefað mest ljósmyndaði staður á Balí. Á heimleiðinni er snæddur kvöldverður á sveitakrá sem er útibú frá einum þekktasta fiskveitingastað Balí, Ganesha í Jimbaran. (M, K)

1428. mars 2027Frjáls dagur í Sanúr
Þennan dag er engin skipulögð dagskrá og hægt að slaka á og njóta lífsins í Sanúr. (M)
1529. mars 2027Heimsókn á listasafn
Kl. 11.00 fara þau sem vilja að skoða listasafn og heimili eins af fyrstu erlendu myndlistarmönnunum sem settust að á Balí, Le Mayeur de Merpes. Hús Le Mayeur stendur við ströndina í um 20 mínútna göngufæri frá hótelinu okkar. (M)

1630. mars 2027Kynnisferð til Austur-Balí
Kl. 9.00. er kynnisferð um austurhluta Balí. Leiðin liggur austur með suðurströnd eyjarinnar. Fyrst er numið staðar til að skoða strandhofið Pura Goa Lawah, við op hellis sem fullur er af leðurblökum. Þaðan er sagt að liggi göng upp í Gunung Agung, Fjallið mikla, eldfjallið fræga sem eyjarskeggjar líta á sem bústað guðanna. Hofið gegnir veigamiklu hlutverki varðandi útfararsiði Balí-búa. Þá er haldið enn lengra austur til Tenganan, sem er eitt fimm þorpa frumbyggjanna Bali Aga sem voru fyrir á eyjunni þegar hindúar frá Jövu tóku að flytjast til Balí fyrir rúmum þúsund árum. Þarna má fá nasasjón af menningu sem er um margt ólík menningu annarra Balí-búa. Því næst er haldið enn austar, til Candidasa og Amlapura, höfuðborgar Karangasem-héraðs og síðan upp í hlíð Agung-fjalls, hins undurfagra staðar Tirta Gangga sem konungurinn í Karangasem lét útbúa sér til yndis. Þar er snæddur hádegisverður. Á bakaleiðinni er komið við í borginni Semarapura (eða Klungkung) sem fyrr á öldum var höfuðborg voldugasta konungsríkis Balí og skoðaðar stórmerkilegar stjórnarbyggingar sem reistar voru á blómaskeiði þess. Frægust þeirra er dómshúsið Kertha Gosa. (M, H)

1731. mars 2027Sanúr
Engin skipulögð dagskrá er þennan dag, en líkt og ævinlega er Örnólfur fús að liðsinna og ráðleggja fólki um hvaðeina. (M)

181. apríl 2027Kveðjukvöldverður
Frjáls dagur í Sanúr. Um kvöldið verður sameiginleg kveðjumáltíð á japanska veitingastaðnum Soya, skammt frá Griya Santrian. (M, K)
192. apríl 2027Balí kvödd
Þar sem flugið okkar frá Balí er ekki fyrr en upp úr miðnætti, greiða Ævintýraferðir fyrir aukanótt á hótelinu og fólk heldur því herbergjum sínum alveg fram að brottför. Flogið með EK369 kl.00.35 og lent í Dúbaí kl.05.35. (M)

203. apríl 2027Heimkoma
Flogið með EK159 frá Dubai kl.07.30 og lent í Ósló kl.12.35. Lokaleggurinn er með flugi FI323 kl.16.30 og lent í Keflavík kl.17.20.
21Lúxusvillur á ARMA
Á ARMA er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug. Ýmsir frægir gestir hafa notað þetta húsnæði í heimsóknum til Balí, t.d. Desmond Tutu og Barack og Michelle Obama. Aukagjald fyrir hverja villu er 10.000 kr. pr. nótt. Athugið að takmarkaður fjöldi af villum er í boði.

22Valkvæð ferð til eyjanna Flores og Kómodó
Í ferðinni gefst kostur á að fara áhugaverða 3ja daga aukaferð til indónesísku eyjanna Flores og Kómodó. Verð: 80.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli: 30.000 kr. Innifalið: Flug, allur akstur til og frá flugvöllum, 2ja nátta gisting ásamt morgunverði á glæsilegu 5 stjörnu hóteli, Meruorah Komodo, sjávarfangsveisla við höfnina í Labuan Bajo fyrra kvöldið, og ferð annan daginn með hraðbáti til Kómodó- eyjar til að skoða drekana frægu – elstu og stærstu skriðdýr heims. Þriðja daginn er farin skoðunarferð um Labuan Bajo og unglingaskóli sem Örnólfur hefur sérstök vináttutengsl við heimsóttur, áður en flogið er aftur til Balí. Hægt er að geyma farangur á hótelinu í Úbúd meðan á þessari ferð stendur.
23Praktískar upplýsingar
Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Staðfestingargjald er óafturkræft nema ferðaskrifstofa þurfi af óviðráðanlegum ástæðum að hætta við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, en hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina, þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Ferðaskrifstofan sér um að sækja um vegabréfsáritun til Indónesíu fyrir farþega. Farangursheimild: 30 kg innrituð taska + 7 kg handfarangurstaska (cabin). Örnólfur hannar og skipuleggur ferðina, velur áfangastaði, gististaði og alla ferðartilhögun. Fararstjóri er Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumaður er einnig ávallt með í för.
Gisting
- ARMA Resort ★★★★Úbúd
- Hotel Griya Santrian★★★★Sanúr
- Hotel Meruorah★★★★★Flores
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Flugfargjald frá Íslandi til Balí og til baka. Vegabréfsáritun til Indónesíu. Akstur til og frá flugvelli á Balí. Hótelgisting ásamt morgunverði. Máltíðir sem tilteknar eru í ferðalýsingu. Á ARMA Resort er einnig boðið upp á síðdegiskaffi með meðlæti. Fjórar heilsdags kynnisferðir um Balí. Aðgangseyrir að öllum stöðum sem skoðaðir eru. Kecak-sýning ásamt kvöldverði. Akstur á tilfallandi viðburði sem færi kann að gefast á að taka þátt í s.s. brúðkaup, musterishátíðir, bálfarir o.s.frv. Enskumælandi fylgdar- og staðarleiðsögumaður, hin ástsæla Ayu Tirta, hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár. Ókeypis far með „hótelskutlu“ ARMA sem ekur hringferð um miðbæinn í Úbúd nokkrum sinnum á dag. Ótakmarkaður aðgangur að hinu margverðlaunaða listasafni Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem geymt er í þremur fögrum húsum í hótelgarðinum. Fararstjórn Örnólfs Árnasonar.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í ferðalýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra (c.a. 5 USD á dag). Aukagjald fyrir „villu“ með einkagarði og sundlaug á ARMA Resort. Aukagjald fyrir ferð til Flores og Kómodó. Ferðamannaskattur/komugjald til Indónesíu, 150.000 IDR á mann, sem samsvarar u.þ.b. 1.300 kr.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Balí, Kómodó og Flores — 15. mars – 3. apríl 2027.
