




Balí, Kómodó og Flores
8. – 26. október 2025
Ferðin er uppseldFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
018. október 2025Keflavík–Balí
Lagt af stað með FI318 til Óslóar kl.07.50 og lent á Gardemoen kl.12.35. Haldið áfram með EK160 kl.14.35 og lent í Dubai kl.23.25. Síðan flogið þaðan með EK368 kl.03.25.

029. október 2025Úbúd
Lent á Denpasar-flugvelli á Balí kl.16.35. Ekið til Úbúd og skráð sig inn á ARMA Resort þar sem dvalið verður fyrsta hluta ferðarinnar. ARMA er einhver fegursti og notalegasti gististaður í bænum Úbúd, en sá bær er höfuðstaður hindúamenningarinnar á Balí. Úbúd hefur mest seiðmagn allra staða á eyjunni. Þar er einnig auðvelt að njóta margvíslegra lystisemda og bæta jafnframt einhverju nýju í reynslubankann á hverjum degi. Í gríðarstórum garði ARMA sem unun er að spássera um hefur maður hvarvetna fyrir augum samspil frjálsrar náttúru og heillandi listfengis mannlegrar sköpunar. Í þessu umhverfi ilmar allt af fegurð og góðum smekk. Á ARMA er m.a. stórkostlegt listasafn, Agung Rai Museum of Art (ARMA), sem hefur tvívegis hlotið verðlaun sem besta listasafn Indónesíu. Dvalargestir hafa ótakmarkaðan aðgang að listasafninu. Agung Rai og kona hans, eigendur ARMA, veita börnum og ungu fólki tækifæri til að þroska hæfileika sína og njóta tilsagnar fremsta listafólks Úbúd í myndlist, tónlist, Balí-dansi o.fl. án endurgjalds. Þannig láta þau samfélagið njóta þeirrar velgengni sem þau hafa uppskorið af áratuga starfi, sem þau hófu með tvær hendur tómar. Hjónin njóta gífurlegra vinsælda og virðingar á Balí. Þau eru miklir vinir Örnólfs og bjóða Íslendingahópnum ævinlega til glæsilegrar kvöldverðarveislu í útileikhúsi sínu í miðjum garðinum með hljóðfæraslætti og dansatriðum.
03Lúxusvillur á ARMA
Á ARMA er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug. Ýmsir frægir gestir hafa notað þetta húsnæði í heimsóknum til Balí, t.d. Desmond Tutu og Barack og Michelle Obama. Aukagjald fyrir hverja villu er 10.000 kr. pr. nótt. Athugið að takmarkaður fjöldi af villum er í boði.

0410. október 2025Úbúd
Að loknum morgunverði býður Agung Rai eigandi ARMA hópinn velkominn og gefur okkur örlitla hugmynd um þá lífssýn og fagurfræði sem hann aðhyllist og heillað hefur heimsbyggðina og gert Balí að einum eftirsóttasta áfangastað veraldar. Um kvöldið er snædd sameiginleg máltíð á einum mest sjarmerandi matstað Úbúd, Café Wayan. (M, K)

0511. október 2025Kynnisferð – Úbúd og nágrannabæir
Lagt af stað að loknum morgunverði kl. 9 og fyrst eru heimsóttir áhugaverðir staðir í Úbúd. Aðeins spölkorn frá ARMA er Apaskógurinn helgi (Holy Monkey Forest). Þar er friðaður griðastaður fyrir stórt samfélag makakí-apa og nokkur forn hindúa-musteri, m.a. „Dauðahofið mikla“ Pura Dalem Agung, tileinkað guðinum Shiva. Síðan er ekinn hringur um miðbæ Úbúd til að glöggva sig á staðnum og þar næst heimsótt sölugalleríi starfandi myndlistarmanna, en Úbúd er mesti listamannabærinn á Balí. Þá er haldið suður til steinsmíðabæjarins Batubulan þar sem tækifæri gefst til að sjá steinsmiði að störfum og skoða höggmyndir og styttur. Næst liggur leiðin um bæ þar sem nær allir íbúar fást við gull- og silfursmíðar og hafa gert mann fram af manni um aldir. Við heimsækjum stórt silfursmíðaverkstæði þar sem einnig er hægt að kaupa skartgripi. Þá er tekið hús á fjölskyldu í bænum Batuan til að kynnast dæmigerðri húsaskipan og tilhögun sem einkennir lífshætti og fornar reglur sem fylgt er vandlega enn í dag. Þessu næst er haldið til mestu tréskurðarbæja Balí, Mas og Kemenuh, þar sem hægt er að sjá handverksmenn við iðju sína og skoða stórkostlegt gallerí með stórum og smáum gripum, afrakstri þessa listiðnaðar sem gengið hefur í arf frá kynslóð til kynslóðar gegnum aldirnar. Hádegisverður snæddur á veitingastaðnum Dewa Malen, snoturri sveitakrá við iðgrænan hrísgrjónaakur. Síðasti viðkomustaðurinn í þessari ferð er dansskóli Agung Istri Wirati sem er einn virtasti kóreógraf Balí, dóttir frægustu Balídansmeyjar síðustu aldrar, Raka Rasmi. Hún kennir ungu fólki í garði hallarinnar Puri Kanginan í Peliatan skammt frá ARMA. Nemendurnir stíga m.a. Legong-dans fyrir okkur en sá dans þykir þokkafyllstur allra Balídansa (M, H)

0612. október 2025Frjáls dagur í Úbúd
Í Úbúd er margt að sýsla, urmull af galleríum, listmunabúðum, kaffihúsum og veitingahúsum. Hótelskutlan, sem er gestum að kostnaðarlausu, gengur frá ARMA upp í miðbæinn nokkrum sinnum á dag, auk þess sem auðvelt er að semja um ferðir á öðrum tímum. Örnólfur er fús að ráðleggja fólki val á veitingastöðum og hjálpa til við borðapantanir. (M)
0713. október 2025Kynnisferð – Norður til fjalla
Lagt af stað kl. 9 að loknum morgunverði og ekið til bæjarins Tampaksiring. Þar er heimsótt frægasta vatnshof Balí, Pura Tirta Empul, þangað sem eyjarskeggjar flykkjast á tyllidögum til andlegrar hreinsunar og uppljómunar. Hópnum gefst kostur á að þvo af sér allar syndir í hinu helga uppsprettuvatni og hljóta að því loknu blessun hindúaprests við sérstaka athöfn. Þessu næst er haldið upp á fjallgarðinn mikla þar sem upp úr gnæfa tindar eldfjalla sem ná allt að rúmlega 3.000 metra hæð. Á leiðinni er numið staðar á búgarðinum Cantik þar sem ræktað er kaffi af ýmsum tegundum, te, kakó og fjölmargar aðrar nytjajurtir, meðal annars engifer, ginseng og ótal kryddtegundir. Gestum er boðið að prófa framleiðsluna, þ.á.m. að smakka hið fræga Luwak- eða „kattaskítskaffi“, sem er dýrasta kaffi í heimi. Loks er ekið norður til Kintamani og snæddur hádegisverður í hlíðinni þaðan sem undurfagurt útsýni er yfir Batur-vatn, sem er gamall, risastór gígur, og til eldfjallanna beggja vegna vatnsins. Landslagið á bakaleiðinni til Úbúd er einnig tilkomumikið og við stoppum m.a. í bænum Tegallalang til að skoða hrísgrjónaakra í bröttum suðurhlíðum fjallanna, fræðumst um fornt, hugvitsamlegt áveitukerfi Balíbúa sem nefnist SUBAK og fleira varðandi búskap á eynni. (M. H)

0814. október 2025Kvöldverðarboð og Kecak
Frjáls dagur í Úbúd, en um kvöldið er farið á Kecak-sýningu í bænum Besdulu hjá elsta hópnum sem iðkar þá sérkennilegu og áhrifamiklu söng- og danslist. Aðeins hálftíma akstur er til Bedulu frá ARMA. Eftir sýninguna er borinn fram girnilegur balískur kvöldverður á veitingastað Fílahellisins, Goa Gajah. Kórfélagar sjá um allan akstur og skila okkur aftur heim á ARMA. (M, K)

09Valkvæð ferð til Flores og Kómodó
Í ferðinni gefst kostur á 3ja daga ferð til indónesísku eyjanna Flores og Kómodó. Hægt er að geyma töskur á hótelinu í Úbúd meðan á þessari ferð stendur. Verð: 80.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli er 30.000 kr. Innifalið: Flug (1,15 klst. hvora leið), allur akstur til og frá flugvöllum, 2ja nátta gisting á 5 stjörnu hóteli með morgunverði og bátsferð til Kómodó-eyjar með hádegisnesti.
1015. október 2025Flores / Heilsað upp á heimafólk í Úbúd
Þau sem fara í ferðina til eyjanna Flores of Kómodó skrá sig út af ARMA fyrir hádegi. Hægt er að skilja töskur eftir á ARMA og Ayu, aðstoðarkona okkar á Balí, sér um að koma þeim á hótelið í Sanúr. Brottför til flugvallar verður tilkynnt síðar en ráðgert er að koma til Labuan Bajo á Flores síðla dags. Þangað er aðeins rúmlega klukkustundarflug frá Balí. Gist næstu tvær nætur á Hotel Meruorah Komodo, stórglæsilegu 5* hóteli sem stendur á hafnarbakkanum í Labuan Bajo vestast á eynni Flores. Eftir innskráningu á hótelið er heimsóttur fiskmarkaður bæjarins sem staðsettur er rétt hjá og þar er slegið upp grillveislu og gætt sér á ljúffengu sjávarfangi. (M, K) Þeim sem halda kyrru fyrir á Balí gefst kostur á að fara í ferð með Ayu og kynnast nánar lífsháttum innfæddra, m.a. á heimilum þeirra. (M, H)

1116. október 2025Kómodó / Frjáls dagur í Úbúd
Morgunverður eldsnemma á Hotel Meruorah og síðan haldið af stað með einkahraðbáti til Komódó að skoða drekana frægu sem kenndir eru við þá eyju. Drekar þessir eru stærstu skriðdýr veraldar, af ævafornum ættstofni. Margt fleira er að sjá á siglingunni til og frá Komódó. Sums staðar er farið í land og færi gefst á að baða sig í sjónum. Hádegisverðarnesti er borið fram á bátnum. Komið aftur til Labuan Bajo upp úr miðjum degi. Kvöldið frjálst. (M, H) Á Balí hefur hver sína hentisemi, hvort sem fólk vill nýta þennan síðasta dag í Úbúd til að skoða sig um eða versla, eða bara hafa það notalegt á ARMA Resort. Það er t.d. tilvalið að panta sér nudd á hótelinu. (M)

1217. október 2025Haldið til Sanúr
Útskráning á ARMA í Úbúd og Ayu fylgir hópnum til Sanúr. Innskráning á Grija Santrian Resort sem er frábært hótel á besta stað í þeim ljúfa strandbæ. Á Flores er útskráning af Hotel Meruorah Komodo fyrir hádegi. Síðan haldið til flugvallar með smáviðdvöl á matvælamarkaði Lanuan Bajo og svo flogið aftur til Balí. Komið til Sanúr fyrir kvöldmatartíma og skráð sig inn á Grija Santrian þar sem sá farangur sem skilinn var eftir í Úbúd bíður eigenda sinna. (M)
1318. október 2025Sanúr
Eftir morgunverð á Griya Santrian við fjöruborðið í Sanúr fara þau sem vilja í göngutúr með Örnólfi til að glöggva sig á mikilvægum stöðun í nágrenninu, er miðbæ Sanúr. (M)

1419. október 2025Frjáls dagur í Sanúr
Sanúr er elsti strandbærinn á Balí og hentar vel þeim sem kjósa friðsæld, fagurt umhverfi og vönduð veitingahús fremur en diskótek og háværa bari. Á þessum árstíma er veðrið á Balí mjög notalegt, hitinn yfirleitt á bilinu 22–28 C°. (M)

1520. október 2025Kynnisferð til Vestur-Balí
Kl. 15.00 er kynnisferð til Vestur Balí. Þessi ferð er farin um eftirmiðdag til að njóta sólarlagsins við Indlandshaf. Fyrst er komið við á batíkverkstæði í höfuðborginni Denpasar en síðan ekið norður til Mengwi sem var eitt voldugasta konungsríki Balí á 18. og 19. öld. Þar skoðum við Taman Ayun (Fögrugarða), hof og skrúðgarða konungs, sem er meðal fegurstu staða á Balí. Að því búnu er haldið til strandar til að upplifa sólarlagið við Tanah Lot, frægasta sjávarhof eyjunnar, sem er óefað mest ljósmyndaði staður á Balí. Á heimleiðinni er svo snæddur kvöldverður á sveitakrá sem er útibú frá einum þekktasta fiskveitingastað Balí, Ganesha í Jimbaran. (M, K)

1621. október 2025Heimsókn á listasafn
Kl. 11.00 fara þau sem vilja að skoða listasafn og heimili eins af fyrstu erlendu myndlistarmönnunum sem settust að á Balí, Le Mayeur de Merpes. Hús Le Mayeur stendur við ströndina í um 20 mínútna göngufæri frá hótelinu okkar. (M)
1722. október 2025Frjáls dagur í Sanúr
Engin skipulögð dagskrá er þennan dag, en líkt og ævinlega er Örnólfur fús að liðsinna og ráðleggja fólki um hvaðeina. (M)
1823. október 2025Kynnisferð til Austur-Balí
Kl. 9.00. er kynnisferð til Austur Balí. Leiðin liggur austur með suðurströnd eyjarinnar. Fyrst er numið staðar til að skoða strandhofið Pura Goa Lawah við op hellis sem fullur er af leðurblökum. Þaðan er sagt að liggi göng upp í Gunung Agung, Fjallið mikla, eldfjallið fræga sem eyjarskeggjar líta á sem bústað guðanna. Hofið gegnir veigamiklu hlutverki varðandi útfararsiði Balíbúa. Þá er haldið enn lengra austur til Tenganan en það er eitt fimm þorpa frumbyggjanna Bali Aga sem voru fyrir á eyjunni þegar hindúar frá Jövu tóku að flytjast þangað fyrir rúmum þúsund árum. Þarna má fá nasasjón af menningu sem er um margt ólík menningu annarra Balíbúa. Því næst er haldið enn austar, til Candidasa og Amlapura, höfuðborgar Karangasem-héraðs og síðan upp í hlíð Agung-fjalls, hins undurfagra staðar Tirta Gangga sem konungurinn í Karangasem lét útbúa sér til yndis. Þar er snæddur hádegisverður. Á bakaleiðinni er komið við í borginni Semarapura (eða Klungkung) sem fyrr á öldum var höfuðborg voldugasta konungsríkis Balí og skoðaðar stórmerkilegar stjórnarbyggingar sem reistar voru á blómaskeiði þess. Frægust þeirra er dómshúsið Kertha Gosa. (M, H)

1924. október 2025Frjáls dagur og kveðjukvöldverður
Frjáls dagur í Sanúr. Um kvöldið verður sameiginleg kveðjumáltíð á japanska veitingastaðnum Soya, skammt fré Griya Santrian. (M, K)
2025. október 2025Balí kvödd
Útskráning á Gryia Santrian. Þar sem brottför á flugvöllinn er ekki fyrr en kl. 21.00 gefst góður tími til að kveðja Sanúr og Balí og slaka á fyrir heimferðina. (M)

2126. október 2025Heimflug
Flogið frá Balí með EK 399 kl. 00.35 hinn 26. október og lent í Dubai kl. 05.35. Síðan með EK 147 kl. 08.10 og lent í Amsterdam kl. 12.45. Lokaleggurinn er með FI 507 kl. 15.50 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 18.05.
22Praktískar upplýsingar
Staðfestingargjald er óafturkræft. Gætið þess að hafa forfallatryggingu, sem er reyndar hluti af ferðatryggunum sem fylgja kreditkortum. Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, og hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Sá kostnaður rynni síðan til útlendra kortafyrirtækja, í Ísrael og Brasilíu. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Sækja þarf um vegabréfsáritun til Balí á netinu (e-visa). Nákvæmar leiðbeiningar um umsóknarferlið verða sendar út þegar nær dregur. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Örnólfur hannar og skipuleggur ferðina, velur áfangastaði, gististaði og alla ferðartilhögun. Fararstjóri er Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumaður er einnig alltaf með í för.
Gisting
- ARMA Resort★★★★Úbúd
- Hotel Griya Santrian★★★★Sanúr
- Hotel Meruorah★★★★★Flores
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Flugfargjald frá Íslandi til Balí og til baka. Akstur til og frá flugvelli á Balí. Hótelgisting ásamt morgunverði. Máltíðir sem kynntar eru í ferðalýsingu. Á ARMA Resort er einnig boðið upp á síðdegiskaffi með meðlæti. Fjórar heilsdags kynnisferðir um Balí. Aðgangseyrir að öllum stöðum sem skoðaðir eru. Kecak-sýning ásamt kvöldverði. Akstur á tilfallandi viðburði sem færi kann að gefast á að taka þátt í s.s. brúðkaup, musterishátíðir, bálfarir o.s.frv. Enskumælandi fylgdar- og staðarleiðsögumaður, hin ástsæla Ayu Tirta, hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár. Ókeypis far með „hótelskutlu“ ARMA sem ekur hringferð um miðbæinn í Úbúd nokkrum sinnum á dag. Ótakmarkaður aðgangur að hinu margverðlaunaða listasafni Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem geymt er í þremur fögrum húsum í hótelgarðinum. Fararstjórn Örnólfs Árnasonar.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í ferðalýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra (c.a. 5 USD á dag). Aukagjald fyrir „villu“ með einkagarði og sundlaug á ARMA Resort. Aukagjald fyrir ferð til Flores og Kómodó.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Balí, Kómodó og Flores — 8. – 26. október 2025.
