




Balí
9.–29. október 2023
Ferðin er uppseldFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
019. október 2023Keflavík–Balí
Flogið með Icelandair til Osló og þaðan til Balí með flugfélaginu Emirates, með viðkomu í Dubai. Balí er oftar líkt við paradís en nokkurri annarri eyju í víðri veröld. Loftslagið er gott, fólkið einstaklega ljúft og fallegt. Matur á Balí er ferskur, bragðmikill, fjölbreyttur og girnilegur á diski. Hreinlæti á veitinga- og gististöðum stenst strangar kröfur. Öryggi ferðamanna er afar vel tryggt og heilbrigðisþjónusta ágæt. Verðlag á Balí er mjög hagstætt. Sem dæmi má nefna að vönduð gleraugu eru a.m.k. helmingi ódýrari í Úbúd en á Íslandi. Það sem heillar okkur líklega allra mest við Balí er yndisþokki hindúamenningarinnar sem fléttar saman fortíð og nútíð, hátíðir og hversdagslíf á léttan og afslappaðan hátt. Undursamleg fegurð gleður auga gestsins hvert sem litið er – náttúran, mannvirkin, skreytingarnar, listaverkin, fólkið og klæðnaður þess. Milli fagurgrænna hrísgrjónaakra á stöllum fjallshlíðanna er ýmist frumskógur með himinháum trjám eða hyldjúp gljúfur, grafin af ám með fossum og flúðum. Upp úr úr öllu þessu gnæfa svo tíguleg eldfjöll. Í ferðinni verður kappkostað að grípa hvert tækifæri sem gefst til að öðlast nána innsýn í líf eyjarskeggja, til dæmis að verða boðið í hátíðarathafnir hindúa til að fagna fullu tungli í bæjarmusterinu, vera við brúðkaup á einkaheimili eða taka þátt í bálför, sem er ein tilkomumesta og fjörugasta trúarathöfn hindúa. Lykillinn að þessu síðasttalda er hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár, hin frábæra Ayu (Ni Gusti Ayu Tirta), sem vinnur hug og hjarta allra, ekki bara okkar aðkomufólksins, heldur njótum við þeirra vinsælda og trausts sem hún nýtur í samfélaginu. Ayu hefur einstakt lag á að tengja hópana okkar við innfædda, jafnvel æðstu hindúaprestana í hofum þar sem við heiðingjarnir hljótum blessun þeirra.

0210. október 2023Úbúd
Fyrstu 10 dagana er dvalið á ARMA Resort, einhverjum fegursta og notalegasta gististað í bænum Úbúd, sem er miðstöð hindúamenningarinnar á Balí. Í gríðarstórum garði ARMA, sem unun er að spássera um, hefur maður hvarvetna fyrir augum samspil frjálsrar náttúru og heillandi listfengis mannlegrar sköpunar. Í þessu umhverfi ilmar allt af fegurð og góðum smekk. Á ARMA er m.a. stórkostlegt listasafn, Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem hefur tvívegis hlotið verðlaun sem besta listasafn landsins í einkaeigu. Dvalargestir hafa ótakmarkaðan aðgang að listasafninu. Auk ljómandi vistlegra hótelherbergja er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug (sjá myndir). Ýmsir frægir gestir hafa notað þetta húsnæði í heimsóknum til Balí, t.d. Desmond Tutu og Barack og Michelle Obama. Athugið að takmarkaður fjöldi af lúxusvillum er í boði. Agung Rai og kona hans, eigendur ARMA, veita börnum og ungu fólki tækifæri til að þroska hæfileika sína og njóta tilsagnar fremsta listafólks Úbúd í myndlist, tónlist, Balí-dansi o.fl. án nokkurs endurgjalds. Þannig láta þau samfélagið njóta þeirrar velgengni sem þau hafa uppskorið af áratuga starfi, sem þau hófu með tvær hendur tómar. Hjónin njóta gífurlegra vinsælda og virðingar. Þau eru miklir vinir Örnólfs og bjóða Íslendingahópnum ævinlega til glæsilegrar kvöldverðarveislu í útileikhúsi sínu í miðjum garðinum, með hljóðfæraslætti og dansatriðum. Úbúd hefur mest seiðmagn allra staða á Balí. Þar er auðvelt að njóta margvíslegra lystisemda og bæta jafnframt einhverju nýju í reynslubankann á hverjum degi.

0320. október 2023Sanúr
Síðustu 8 dögunum er varið í bænum Sanúr, rétt hjá höfuðborginni Denpasar, á Griya Santrian, dásamlegu strandhóteli við fjöruborðið þar sem auðvelt er að njóta lífsins lystisemda. Sanúr er elsti strandbærinn á Balí og hentar vel þeim sem kjósa friðsæld, fagurt umhverfi og vönduð veitingahús fremur en diskótek og háværa bari. Í október er veðrið á Balí mjög notalegt, hitinn yfirleitt á bilinu 25–29 stig.

0412. október 2023Kynnisferð 1 – Úbúd og nágrannabæir
Lagt af stað að loknum morgunverði kl. 9 og fyrst eru heimsóttir áhugaverðir staðir í Úbúd. Aðeins spölkorn frá ARMA er Apaskógurinn helgi (Holy Monkey Forest). Þar er friðaður griðastaður fyrir stórt samfélag makakíapa og nokkur forn hindúa-musteri, m.a. „Dauðahofið mikla“, Pura Dalem Agung, tileinkað guðinum Shiva. Síðan er ekinn hringur um miðbæ Úbúd til að glöggva sig á staðnum og þar næst heimsótt sölugalleríi starfandi myndlistarmanna. Úbúd er mesti listamannabærinn á Balí. Þá er haldið suður til steinsmíðabæjarins Batubulan þar sem tækifæri gefst til að sjá steinsmiði að störfum og skoða höggmyndir og styttur. Næst liggur leiðin um bæ þar sem nær allir íbúar fást við gull- og silfursmíðar og hafa gert mann fram af manni um aldir. Við heimsækjum stórt silfursmíðaverkstæði þar sem einnig er hægt að kaupa skartgripi. Þá er tekið hús á fjölskyldu í bænum Batuan til að kynnast dæmigerðri húsaskipan og tilhögun sem einkennir lífshætti og fornar reglur sem fylgt er vandlega enn í dag. Þessu næst er haldið til Mas og Kemenuh, mestu tréskurðarbæja Balí, þar sem hægt er að sjá handverksmenn við iðju sína og skoða stórkostlegt gallerí með stórum og smáum gripum, afrakstri þessa listiðnaðar sem gengið hefur í arf frá kynslóð til kynslóðar gegnum aldirnar. Að loknum hádegisverði á veitingastaðnum Malen, í ljúfu umhverfi við iðgræna hrísgrjónaakra, er á heimleiðinni komið við í virtasta dansskóla Balí þar sem Agung Istri Wirati kennir ungu fólki í garði konungshallarinnar Puri Kanginan, í Peliatan skammt frá ARMA. Nemendurnir stíga m.a. Legong dans fyrir okkur en sá dans þykir þokkafyllstur allra Balídansa.

0515. október 2023Kynnisferð 2 – Norður til fjalla
Tampaksiring, Pura Tirta Empul, Kintamani, Batur-vatn og Tegallalang. Lagt af stað kl. 9 að loknum morgunverði og ekið í norður til þorpsins Tampaksiring. Fyrst er rölt um matvælamarkað til að kynnast högum almennings í sveitum áður en heimsótt er frægasta vatnshof Balí, Pura Tirta Empul, þangað sem eyjarskeggjar flykkjast á tyllidögum til andlegrar hreinsunar og uppljómunar. Hópnum gefst kostur á að lauga sig í hinu helga uppsprettuvatni og hljóta að því loknu blessun hindúaprests við sérstaka athöfn. Þessu næst er haldið upp á fjallgarðinn mikla þar sem upp úr gnæfa tindar sem ná allt að rúmlega þrjú þúsund metra hæð. Á leiðinni er numið staðar á búgarðinum Cantik þar sem ræktað er kaffi af ýmsum tegundum, te, kakó og fjölmargar aðrar nytjajurtir, meðal annars engifer, ginseng og ótal kryddtegundir. Gestum er meðal annars boðið að prófa framleiðsluna þ.á.m. að smakka hið fræga Luwak- eða „kattarkúkskaffi“, dýrasta kaffi í heimi. Loks er ekið norður til Kintamani og snæddur hádegisverður í hlíðinni þaðan sem undurfagurt útsýni er yfir Batur-vatn, sem er gamall, risastór gígur, og til eldfjallanna beggja vegna vatnsins. Landslagið á bakaleiðinni til Úbúd er tilkomumikið og m.a. er numið staðar í bænum Tegallalang til að skoða hrísgrjónaakra í bröttum suðurhlíðum fjallanna og fræðast um fornt, hugvitsamlegt áveitukerfi Balíbúa, sem nefnist SUBAK, og fleira varðandi búskap á eynni.

0620. október 2023Kynnisferð 3 – Vestur-Balí
Vestur-Balí – Tanah Lot og Taman Ayun. Þessi ferð hefst í Úbúd og lýkur í Sanúr, hún er því í senn skoðunarferð og flutningur milli gististaða. Pakka þarf farangrinum, láta hótelstarfsmenn á ARMA sækja hann og fara með fram í anddyrið. Þeir setja töskurnar í sendibíl sem flytur þær til Sanúr. Farangurinn bíður okkar svo á nýja gististaðnum, Griya Santrian, þegar við komum þangað í eftirmiðdaginn. Fyrst er ekið norður, gegnum útjaðar höfuðborgarinnar Denpasar, og síðan út á vesturströndina að Indlandshafi þar sem skoðað er eitt frægasta mannvirki eyjarinnar, strandhofið Tanah Lot sem er án efa mest ljósmyndaði staðurinn á Balí. Snæddur hádegisverður á snoturri sveitakrá við hrísgrjónaakur. Að því loknu er haldið til Mengwi sem var stjórnarsetur voldugra konunga frá því á sautjándu öld og fram undir lok þeirrar nítjándu. Síðan er förinni heitið inn á miðja eyju til Úbúd og liggur leiðin um fagrar sveitir.

0725. október 2023Kynnisferð 4 – Austur-Balí
Austur-Balí – Pura Goa Lawah, Tenganan, Candidasa, Karangasem, Tirta Gangga, Klungkung, Kertha Gosa. Leiðin liggur um borgirnar Gianyar, höfuðborg samnefnds héraðs, og Klungkung og svo austur með suðurströndinni. Fyrst er numið staðar til að skoða strandhofið Pura Goa Lawah við op hellis sem fullur er af leðurblökum. Þaðan er sagt að liggi göng upp í Gunung Agung, Fjallið mikla, eldfjallið fræga sem eyjarskeggjar líta á sem bústað guðanna. Hofið gegnir veigamiklu hlutverki varðandi útfararsiði Balíbúa. Þá er haldið enn lengra austur til Tenganan en það er eitt fimm þorpa frumbyggjanna Bali Aga sem voru fyrir á eyjunni þegar hindúar frá Jövu tóku að flytjast þangað fyrir rúmum þúsund árum. Þarna má fá nasasjón af menningu sem er um margt ólík menningu annarra Balíbúa. Því næst er haldið enn austar, til Candidasa og Amlapura, höfuðborgar Karangasem-héraðs og síðan upp í hlíð Agung-fjalls (Miklafjalls) til hins undurfagra staðar, Tirta Gangga, sem konungurinn í Karangasem lét útbúa sér til yndis. Þar er snæddur hádegisverður. Á bakaleiðinni er komið við í borginni Semarapura (eða Klungkung), sem fyrr á öldum var höfuðborg voldugasta konungsríkis Balí, og skoðaðar stórmerkilegar stjórnarbyggingar sem reistar voru á blómaskeiði þess. Frægust þeirra er dómshúsið Kertha Gosa.

0810. október 2023Lúxusvillur á ARMA Resort
Á ARMA Resort í Úbúd er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug. Takmarkaður fjöldi af þessum lúxusvillum er í boði.

Gisting
- Hotel Griya Santrian Sanúr
- ARMA ResortÚbúd
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Innifalið: Flugfargjald frá Íslandi til Balí og til baka. Akstur til og frá flugvelli á Balí. Hótelgisting ásamt morgunverði, á ARMA Resort er einnig boðið upp á síðdegiskaffi með meðlæti. Fjórar heilsdags kynnisferðir um Balí. Aðgangseyrir að öllum stöðum sem skoðaðir eru. Akstur á tilfallandi viðburði sem færi kann að gefast á að taka þátt í s.s. brúðkaup, musterishátíðir, bálfarir o.s.frv. Hádegisverður í kynnisferðum. Auk þess þrír kvöldverðir. Enskumælandi fylgdar- og staðarleiðsögumaður á Balí, hin ástsæla Ayu Tirta, hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár. Ókeypis far með „hótelskutlu“ ARMA sem ekur hringferð um miðbæinn í Úbúd öðru hverju allan daginn. Ótakmarkaður aðgangur að listasafninu Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem stendur í hótelgarðinum. Fararstjóri: Örnólfur Árnason Fullnaðaruppgjör 60 dögum fyrir brottför.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra. Aukagjald fyrir „villu“ með einkagarði og sundlaug í 10 daga á ARMA er 80.000 kr. á mann. (100.000 kr. fyrir „Obama“ villuna) Takmarkað framboð er af villunum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Balí — 9.–29. október 2023.
