← Allar ferðir

Albanía, Kósovó og Norður Makedónía

1. – 15. september 2026

Ferðin er uppseld
15 dagarLengd ferðar
17 áfangarFerðaáætlun
548.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 011. september 2026Haldið til Albaníu

    Brottför frá Keflavík með flugi LH845 kl.14:10 og millilent í Frankfurt kl.19:40. Flogið áfram með LH1456 kl.21:00 og lent í Tirana kl.23:10. Þessa fyrstu nótt í Albaníu er til hægðarauka gist á hóteli í nágrenni flugvallarins.

  2. 022. september 2026Shkodra

    Ekið norður til borgarinar Shkodra sem er rétt við landamærin að Svartfjallalandi. Komið við á nýju býli þar sem stundaður er lífrænn búskapur með sjálfbærni að leiðarljósi. Shkodra er þriðja stærsta borg Albaníu og miðstöð rómversk-kaþólska minnihlutans í landinu. Kirkjur og moskur setja sinn svip á borgina og minna á friðsamlega sambúð ólíkra trúarbragða. Við snæðum hádegisverð á fögrum stað við Shkodra-vatn og heimsækjum síðan gamla kastalann, fræðumst um sögu hans og kynnumst frægri goðsögu sem tengist byggingu hans. Frjáls tími síðdegis og þá gefst færi á að ganga um miðborgina, skoða merkar byggingar, versla og slaka á. Gist í Shkodra. (M, H)

  3. 033. september 2026Shkodra–Prizren

    Nú verður haldið til Kósovó. Hluta leiðarinnar er siglt á ferju á Koman-vatni. Siglingaleiðin, sem liggur milli himingnæfra fjalla, er einstök náttúruupplifun sem hefur á síðustu árum öðlast frægð um víða veröld. Eftir að hádegisverður hefur verið snæddur í fjallabænum Bajram Curri er farið yfir landamærin að Kósovó, til borgarinnar Prizren þar sem gist er næstu tvær nætur. (M, H)

  4. 044. september 2026Prizren

    Ófriðurinn í Kósovó leiddi til óbætanlegs tjóns á bæjum og borgum og mikil menningarverðmæti eyðilögðust. Prizren, sem af mörgum er talin fegurst borga Kósovó, slapp að mestu við eyðileggingu og er gott dæmi um hvernig austrænar og vestrænar menningarhefðir mætast á Balkanskaganum. Við förum í útsýnisferð um Prizren fyrrihluta dags og notum síðdegið til hvíldar og hressingar í fögru umhverfi. Gist í Prizren. (M, H)

  5. 055. september 2026Prizren–Kruja

    Nú verður snúið aftur til Albaníu og næsti áfangastaður er fjallabærinn Kruja. Þar skoðum við safn um Skanderbeg, sem var einn frægasti herforingi sögunnar í Evrópu og varðist innrás Tyrkja í heilan aldarfjórðung, 1443–1468. Sumir sagnfræðingar telja að Skanderbeg hafi dregið svo tennurnar úr Tyrkjaher að hann hafi hætt við áform sín um að ráðast á Róm og sjálfan páfastól. Í Kruja gefst einnig tækifæri til að skoða einn stærsta útimarkað, eða bazaar, sem enn er við lýði á Balkanskaganum. Gist í Kruja. M, K

  6. 066. september 2026Kruja–Ohrid

    Nú er ekið austur á bóginn yfir landamærin að Norður Makedóníu. Áfangastaður okkar þar er borgin Ohrid sem stendur við samnefnt vatn. Norður Makedónía er fallegt land og Ohrid er sjálft krúnudjásnið, einn fjölsóttasti ferðamannastaður Balkanskagans, ef ekki sá fjölsóttasti. Gist í Ohrid næstu tvær nætur. (M, H)

  7. 077. september 2026Ohrid

    Fyrir hádegi verður farið með innlendum leiðsögumanni um gömlu borgina þar sem meðal annars er að finna kirkjur og klaustur frá því um 800 e. Kr. Síðdegis er farið í stutta siglingu um vatnið og síðan gefst færi á að slaka á og njóta lífsins við strönd Ohrid-vatns. Gist í Ohrid. (M, H)

  8. 088. september 2026Berat

    Og enn er haldið til Albaníu. Næsti áfangastaður er borgin Berat, þekkt sem „Þúsund glugga borgin“. Skýringin á þeirri nafngift blasir við þegar komið er inn í gömlu borgina, en hún nýtur verndar samkvæmt skilmálum UNESCO. Fyrst verður stoppað í gömlum kastala sem hýsir safn eins frægasta málara landsins, Onufri. Onufri var uppi á 16. öld og málaði einkum helgimyndir, eða íkona, en var þekktur fyrir að sprengja hinn stranga ramma þeirrar listhefðar. Eftir kastalaheimsóknina skoðum við síðan gömlu borgina. Gist í Berat. (M, H)

  9. 099. september 2026Tepelene

    Frá Berat er haldið til Tepelene, smábæjar sem er að mestu ósnortinn af ferðamennsku. Þar verður slakað á og farið í skoðunarferðir að vild. Gist í Tepelene. (M, K)

  10. 1010. september 2026Gjirokaster

    Ekið frá Tepelene til Gjirokaster, sem stundum hefur verið uppnefnd „Brattasta borg í heimi“. Líkt og í Berat er gamli bærinn í Gjirokaster á skrá UNESCO yfir menningarminjar á heimsvísu. Þar skoðum við safn í kastala á fjallstoppi og heimsækjum síðan dæmigert Ottómanhús þar sem sami ættleggur hefur búið í hundruð ára. Síðdegis verður ekið frá Gjirokaster til strandbæjarins Saranda og þar verður gist næstu tvær nætur. (M, K)

  11. 1111. september 2026Saranda

    Frjáls dagur í Saranda. Saranda er strandbær við Jónahafið, rétt norðan við landamærin að Grikklandi. Hópurinn gistir á hóteli við ströndina og hefur frábæra aðstöðu til að njóta lífsins þar, því hótelið hefur eigið svæði til afnota fyrir gesti sína. Þeir sem vilja geta brugðið sér til grísku eyjarinnar Korfú en þangað er örstutt sigling og reglulegar ferjuferðir. (M, K)

  12. 1212. september 2026Vlora

    Ekið frá Saranda norður eftir hinni undurfögru Jónahafsströnd til strandborgarinnar Vlora. Um kvöldið er snæddur kvöldverður hjá fjallabændum sem bjóða upp á eigin afurðir og skemmta gestum með tónlist. Gist í Vlora. (M, K)

  13. 1313. september 2026Vlora–Appolónía–Tirana

    Nú er haldið aftur til höfuðborgarinnar Tirana og hringnum lokað. Á leiðinni er komið við í einu af frægustu minjasvæðum Albaníu, Appolóníu, bæ sem Rómverjar byggðu á fyrstu öldum eftir Krist þar sem hægt er að ganga um meðal furðu vel varðveittra bygginga og dást að glæsileik löngu horfins tíma. Í Appolóníu var starfrækt akademía þar sem lögð var stund á klassísk hellenísk fræði og sumir af þekktustu keisurum Rómverja á tímabilinu sóttu menntun sína þangað. Gist í Tirana næstu tvær nætur. (M, H)

  14. 1414. september 2026Tirana

    Um morguninn verður skoðað risastórt neðanjarðarbyrgi frá kommúnistatímanum í Tirana þar sem yfirstéttinni var ætlað að hafast við ef kæmi til kjarnorkuárásar. Við skoðum helstu merkisstaði miðborgarinnar, en í eftirmiðdaginn gefst tími til að verlsa eða slaka á, áður en haldið er til sameiginlegs kveðjukvöldverðar. Þar sem heimflugið er mjög snemma morguninn eftir verður þessa síðustu nótt ferðarinnar gist á flugvallarhóteli. (M, K)

  15. 1515. september 2026Heimferð

    Flogið með LH1457 kl. 6:10 og lending í Frankfurt kl. 8:30. Flogið áfram með LH844 kl. 11:10 og lent í Keflavík kl. 12:55.

  16. 16Fararstjóri – Jón Guðni Kristjánsson

    Fararstjóri í þessari ferð er Jón Guðni Kristjánsson, fréttamaður og fyrrverandi umsjónarmaður Spegilsins á RÚV, sem er nauðakunnugur Balkanlöndum og starfaði þar hjá fjölþjóðastofnunum á árunum 1999–2002 í kjölfar ófriðarástandins á svæðinu. Í ferðinni verður farið um slóðir sem fáir Íslendingar þekkja af eigin raun, því svo stutt er síðan svæðið varð aðgengilegt og í ljós kom hvílíka ferðamannaparadís löndin hafa að geyma – magnaða náttúrufegurð, fágætar sögulegar minjar og húsagerðarlist, ásamt hrífandi ströndum þar sem útlendu ferðafólki mætir hvarvetna gestrisni og elskulegt viðmót.

  17. 17Hagnýtar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði frá brottför. Staðfestingargjald er óafturkræft nema ferðaskrifstofa þurfi að hætta við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verði ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Fararstjóri er Jón Guðni Kristjánsson. Enskumælandi staðarleiðsögumenn, þar sem við á.

Gisting

  • Best Western Premier Ark Hotel Airport★★★★Tirana
  • Red Bricks Hotel ★★★★Shkodra
  • Hotel Advisson★★★★Prizren
  • Dior hotel Kruja★★★★Kruja
  • Hotel Unique Ohrid★★★★Ohrid
  • Hotel Colombo Berat★★★★Berat
  • Hotel Demi Sarande ★★★★Saranda
  • Valza Hotel Vlore ★★★★Vlore
  • Hotel Tirana International★★★★Tirana
  • Uji Ftohte Hotel Tepelene★★★★Tepelena

Verð

Verð á mann548.000 kr
Staðfestingargjald100.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli80.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flug til og frá Tirana. Gisting með morgunmat á góðum 4* hótelum og 5* hóteli í Durres. Hálft fæði, þ.e. annaðhvort hádegisverður eða kvöldverður á hverjum degi. Íslensk fararstjórn. Enskumælandi fylgdarleiðsögumaður og staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum, þar með talið að söfnum og fornleifastöðum. Bátsferð á Koman-vatni.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Þjórfé til innfæddra leiðsögumanna og bílstjóra. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Albanía, Kósovó og Norður Makedónía — 1. – 15. september 2026.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 548.000 kr

Senda fyrirspurn