




Albanía, Kósovó og Norður Makedónía
20. sept. – 4. okt. 2024
Fáein pláss lausFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
0120. september 2024MÖGNUÐ SAGA – STÓRBROTIN NÁTTÚRA – HEILLANDI STRENDUR
Í þessari ferð verður farið um slóðir sem fáir Íslendingar þekkja af eigin raun, því svo stutt er síðan svæðið varð aðgengilegt og í ljós kom hvílíka ferðamannaparadís þessi lönd hafa að geyma – magnaða náttúrufegurð, fágætar sögulegar minjar og húsagerðarlist, ásamt hrífandi ströndum þar sem útlendu ferðafólki mætir gestrisni og elskulegt viðmót. Þessar nýju perlur túrismans við Miðjarðarhafið eru ekki síst góður kostur fyrir þá sem sækjast eftir að kanna nýjar slóðir. Fararstjóri verður Jón Guðni Kristjánsson, fyrrverandi fréttamaður og umsjónarmaður Spegilsins á RÚV, sem er nauðakunnugur Balkanlöndum og starfaði þar hjá fjölþjóðastofnunum á árunum 1999–2002 í kjölfar ófriðarástandins á svæðinu.

0220. september 2024Keflavík – Tirana
Brottför frá Keflavík með OS 328, rétt upp úr miðnætti, kl.00.10 og komið til Tirana í Albaníu kl. 11.20, með millilendingu í Vínarborg. Hvíld og kvöldverður í Tirana og gist þar.

0321. september 2024Kruje – Shkodra
Farið að morgni frá Tirana til Kruje, fjallabæjar í nágrenni Tirana. Safn um þjóðhetju Albana, herforingjann Skanderbeg skoðað, en hann varðist innrásarher Tyrkja í aldarfjórðung á árunum 1443–1468. Litið við á þjóðháttasafni sem er tengt safni Skanderbegs og notið óviðjafnanlegs útsýnis yfir albönsku sléttuna fyrir neðan. Heimsókn á einn stærsta útimarkað (baazar) landsins. Frá Kruja verður haldið norður til borgarinnar Shkodra sem stendur við landamæri Svartfjallalands. Gisting í Shkodra.

0422. september 2024Shkodra
Dvalið í Shkodra og borgin skoðuð, m.a. rústir ævagamals kastala með goðsagnakennda sögu. Aftur gist í Shkodra.

0523. september 2024Shkodra – Valbona – Gjakova
Lagt af stað frá Shkodra áleiðis austur á bóginn til Gjakova í Vestur-Kósovó. Hluta leiðarinnar verður siglt eftir Koman-vatni sem er hluti af manngerðu uppstöðulóni. Siglt verður um þröng gljúfur áleiðis til bæjarins Valbona sem stendur við samnefndan þjóðgarð. Svæðið er þekkt fyrir ægifegurð, himingnæf fjöll og fjölbreyttan gróður og dýralíf. Eftir hressingu í Valbona verður ekið austur fyrir landamærin til Gjakova sem stendur við rætur háfjallanna sem skilja löndin tvö að. Gisting í Gjakova.

0624. september 2024Gjakova
Haldið kyrru fyrir í Gjakova, sem býður upp á náttúrufegurð og líflega veitinga og verslunarstaði. Gist aftur í Gjakova.

0725. september 2024Gjakova – Ohrid
Nú verður haldið til suðurs, alla leið til Ohrid í Norður-Makedóniu. Leiðin liggur í gegnum eina frægustu og fegurstu borg Kósovó, Prizren, og þaðan áfram til Strpce/Brecovica við rætur Saar-fjallgarðsins sem skilur að vesturhluta Kósovó og Norður-Makedóníu. Þegar komið er yfir landamærin er farið gegnum borgina Tetovo og þaðan áfram til Ohrid. Gisting í Ohrid.
0826. september 2024Ohrid
Dagurinn verður nýttur til að skoða sig um í Ohrid og nágrenni. Meðal annars verður heimsótt kirkja og klaustur sem þar hefur staðið frá því um 900. Gamli miðaldabærinn í Ohrid er eitt helsta aðdráttarafl fyrir ferðamenn í Norður-Makedóníu. Gisting í Ohrid.

0927. september 2024Ohrid – Berat
Ekið yfir landamærin til bæjarins Berat í Albaníu sem er á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstæðrar byggingalistar frá yfirráðatíma Tyrkja í landinu. Heimsóttur verður kastali sem enn er búið í að hluta, en hann geymir gríðarstórt safn albansks íkonamálara frá 16. öld. Gist í Berat.

1028. september 2024Berat – Girókaster
Haldið frá Berat til nágrannabæjarins Girókaster, sem eins og Berat er á heimsminjaskrá UNESCO vegna byggingalistarinnar sem þar blasir við augum. Við heimsækjum hús sem reist var af ríkismanni að nafni Skenduli í byrjun 19. aldar. Afkomandi Skendulis á húsið í dag, býr í því og tekur á móti okkur og rekur sögu hússins, en hann er sögumaður með afbrigðum. Þá verður heimsóttur kastali og stríðsminjasafn á fjallstoppinum. Gist í Girókaster.

1129. september 2024Girókaster – Saranda
Nú höldum við til strandar, til bæjarins Saranda, en á leiðinni er komið við á frægasta fornminjastað landsins, Butrint. Þar getur að líta ótrúlega vel varðveittar minjar frá hellenska og rómverska tímanum og allt frá tímum Fönikíumanna. Gist í Saranda.

1230. september 2024Saranda
Haldið kyrru fyrir í Saranda. Þar er að finna eina bestu strönd Albaníu þar sem tilvalið er að hvílast og slaka á fyrir lokaáfanga ferðarinnar. Gist í Saranda.

131. október 2024Saranda – Vlora
Nú liggur leiðin norður til borgarinnar Vlora um fjallveg þar sem nefnist Himara, en þaðan er ægifagurt útsýni yfir strönd Jónahafsins. Í Vlora verður okkur boðið til kvöldverðar í fjallabænum Tragjas sem þar er í nágrenninu. Þar taka heimamenn sem einkum lifa af sauðfjárrækt á móti okkur og blanda við okkur geði. Gist í Vlora.
142. október 2024Vlora – Tirana
Haldið til Tirana, með viðkomu í Appollóníu, sem er annar frægasti fornleifastaður Albaníu. Þar var starfrækt akademía á fyrstu öldum eftir Krist og þar sem fræðimenn og jafnvel Rómarkeisarar, lögðu stund á hellenísk fræði. Umfangsmikill uppgröftur hefur staðið í Appollóníu yfir árum saman og er áhrifaríkt að upplifa þann glæsileika sem þar hefur ríkt. Síðdegis verður komið til Tirana og gist þar.

153. október 2024Tirana
Haldið kyrru fyrir í Tirana. Boðið upp á gönguferð um miðborgina þar sem margt er að sjá. Áhugasömum gefst kostur á að heimsækja bíótekið í Tirana og fræðast um kvikmyndagerð, bæði á kommúnistatímanum og eftir hann. Gist í Tirana.

164. mars 2024Heimflug
Heimflug hefst með OS 848 kl. 15.05 til Vínarborgar og lent þar kl. 16.35. Síðan haldið áfram með OS 327 kl. 21.00 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 23.20.
17Praktískar upplýsingar
Fullnaðaruppgjör er 60 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í a.m.k. 3 mánuði umfram heimferðardag. Staðfestingargjald er óafturkræft nema hætta þurfi við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart Evru, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Ferðaskrifstofan VITA gefur út farseðla. Fararstjóri ásamt Örnólfi er Jón Guðni Kristjánsson sem er þaulkunnugur í þessum löndum, þar sem hann starfaði hjá fjölþjóðastofnunum sem önnuðust friðargæslu og enduruppbyggingu eftir stríðsástandið í lok síðustu aldar. . Enskumælandi staðarleiðsögumaður er einnig alltaf með í för.
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Flug til og frá Tirana. Gisting með morgunmat á góðum fjögurra stjörnu hótelum. Hálft fæði, þ.e. annaðhvort hádegisverður eða kvöldverður á hverjum degi (alls 16 máltíðir). Íslensk fararstjórn. Enskumælandi fylgdarleiðsögumaður og staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum, þar með talið að söfnum og fornleifastöðum. Bátsferð á Koman-vatni.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Þjórfé til innfæddra leiðsögumanna og bílstjóra. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Albanía, Kósovó og Norður Makedónía — 20. sept. – 4. okt. 2024.
