← Allar ferðir

Japan

29. mars – 11. apríl 2025

Ferðin er uppseld
14 dagarLengd ferðar
15 áfangarFerðaáætlun
1.095.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 0129. mars 2025Keflavík–Tókýó

    Flogið með Finnair AY0992 frá Keflavík kl. 10:00 og lent í Helsinki kl. 15:30. Áfram er flogið með Finnair AY0061 kl. 17:55 og lent í Tókýó kl. 14:20 (30. mars).

  2. 0230. mars 2025Tókýó – Tókýó

    Lent á Haneda flugvelli í Tókýó kl. 14.25 og ekið á hótelið. Engin skipulögð dagskrá er í eftirmiðdaginn, enda vilja flestir líklega taka því rólega eftir langt ferðalag, en um kvöldið borðum við saman kvöldverð á veitingastað í nágrenni hótelsins. (K)

  3. 0331. mars 2025Tókýó

    Kl. 9, að loknum morgunverði, er farið í skoðunarferð um Tókýó. Við byrjum í Metropolitan Government Building í Shinjuku hverfi, sem er hár skýjakljúfur með mikilfenglet útsýni yfir borgina. Síðan göngum við um Shinjuku hverfið og borðum saman hádegismat. Eftir matinn er haldið í Meiji Jingu, helgidóm shinto-trúarinnar, sem var byggt árið 1920 og helgað Meiji keisara og Shoken, keisaraynju hans. Við göngum síðan í gegnum Yoyogi garð, einn stærsta og frægasta almenningsgarð Tókýó, þar sem við sjáum vonandi kirsuberjatré í blóma. (M, H)

  4. 041. apríl 2025Tókýó

    Kl. 8:30, að loknum morgunverði, er farið á Þjóðminjasafnið í Tókýó, elsta þjóðminjasafn landsins sem hýsir margar þjóðargersemar og helstu menningarminjar Japans. Við göngum síðan um Ueno almenningsgarðinn og borðum saman hádegismat. Eftir matinn er förinni heitið í Asakusa hverfið, eitt elsta hverfi Tókýó, þar sem við heimsækjum Sensoji búddahofið og skoðum búðirnar og markaðinn á Nakamise-dori. Við ljúkum skoðunarferð dagsins í Shibuya hverfinu, þar sem m.a. má finna fjölförnustu gatnamót heims. (M, H)

  5. 052. apríl 2025Tókýó – Kanazawa

    Kl. 9, að loknum morgunverði, skoðum við keisarahöllina í Tókýó, sem stendur í stórum garði umlukin síkjum og voldugum múrum. Síðan er farið á lestarstöðina þaðan sem við tökum hraðlest, shinkansen. til Kanazawa. Við borðum hádegismat í lestinni, en Japan er frægt fyrir sérstök nestisbox, ekiben, sem tekin eru með í lestarferðalög. Eftir innritun á hótelið er síðdegið frjálst og um að gera að skoða sig um í Kanazawa sem hefur upp á margt spennandi að bjóða. (M, H)

  6. 063. apríl 2025Kanazawa

    Að loknum morgunverði kl. 8.45 er farið í skoðunarferð um Kanazawa. Kanazawa var heimaborg Maeda samuræ-fjölskyldunnar og er ein af fáum borgum Japans sem slapp við sprengingar í seinni heimsstyrjöldinni. Borgin endurspeglar því vel hina fornu samuræ-menningu Japans. Við byrjum á að heimsækja Kenrokuen, japanskan landslagsgarð sem þykir einn af þremur fallegustu landslagsgörðum Japans. Í garðinum skoðum við m.a. Seison-kaku, villu sem einn höfðingi Maeda-fjölskyldunnar byggði handa móður sinni. Við borðum saman hádegismat og eftir það er haldið í Higashi Chaya hverfið, þar sem finna má gömul tehús og búðir sem selja hefðbundnar japanskar vörur. (M, H)

  7. 074. apríl 2024Kanazawa – Shirakawago – Takayama

    Kl. 9, að loknum morgunverði er haldið til Shirakawago sem er svæði í fjöllum Gifu-héraðs. Shirakawago er á heimsminjaskrá UNESCO vegna sérstakra húsa með stráþökum sem tíðkaðist að byggja þar, en sum þessara húsa eru meira en 250 ára gömul. Eftir að hafa skoðað okkur um í Shirakawago er ferðinni heitið til Takayama, borgar sem er fræg fyrir fallegan, gamlan miðbæ og eina stærstu og þekktustu árlegu hátíð í Japan. Við borðum hádegismat og skoðum að því loknu safn um hátíðina og Takayama Jinja helgidóminn, sem eitt sinn hýsti héraðsstjórn Takayama. Að því loknu er haldið heim á hótel þar sem verður sameiginlegur kvöldmatur. (M, H, K)

  8. 085. apríl 2025Takayama – Kýótó

    Kl. 9, að loknum morgunverði, er farið í skoðunarferð um gamla bæinn í Takayama, en þar heimsækjum við m.a. markað borgarinnar, gömul heimili og sake brugghús. Að því loknu er farið með rútu til Kýótó, hinnar fornu höfuðborgar Japans. (M)

  9. 096. apríl 2025Kýótó

    Kl. 8.30 að loknum morgunverði er farið í Kiyomizudera sem er eitt frægasta búddahof Japans. Við göngum síðan um Gion hverfið, gamla geishu-hverfi borgarinnar, og borðum þar hádegismat. Eftir matinn skoðum við Ginkakuji, „gullhofið“, og göngum síðan heimspekiveginn þar sem finna má allskyns búðir, kaffihús, hof og helgidóma, og ef af vonum lætur, kirsuberjatré í blóma. (M, H)

  10. 107. apríl 2025Kýótó

    Kl. 8.30, eftir morgunmat, förum við í Arashiyama bambusskóginn þar sem við skoðum m.a. Tenryuji, búddahof Zen-búddisma, og Okochi Sanso villuna sem er í hinum hefðbundna japanska wabi-sabi stíl. Að því loknu borðum við hádegismat og síðan er förinni heitið í Kinkakuji, „silfurhofið“, en hofinu tilheyrir sérlega fallegur japanskur garður. (M, H)

  11. 118. apríl 2025Kýótó

    Kl. 9, að loknum morgunverði, höldum við áfram skoðunarferð okkar um Kýótó. Við heimsækjum Fushimi Inari helgidóminn með sín mörg þúsund rauðu hlið, sem á japönsku kallast torii. Fushimi Inari er einn af þekktustu stöðum Kýótó. Síðdegið er frjálst og hægt að skoða sig frekar um í Kýótó á eigin vegum, enda ótalmargt að sjá og upplifa í þessari fögru og sögufrægu. (M)

  12. 129. apríl 2025Hiroshima

    Við hefjum þennan dag fyrr en vanalega, kl. 7:30, þar sem ferðinni er heitið til Hiroshima með shinkanzen hraðlest. Þegar til Hiroshima er komið förum við með rútu í Friðargarðinn, þar sem standa m.a. rústir Genbaku Dome, einu byggingarinnar á svæðinu sem ekki eyðilagðist þegar kjarnorkusprengjunni var varpað á borgina, 6. ágúst 1945. Við skoðum einnig safn um kjarnorkusprengjuna. Eftir heimsóknina í Friðargarðinn snæðum við hádegisverð og sláum síðan á léttari strengi með því að skoða Itsukushima helgidóminn á eyju rétt fyrir utan Hiroshima. Þar er hægt að sjá hið fræga torii-hlið í hafinu. Síðdegis er farið aftur til Kýótó með hraðlestinni. (M, H)

  13. 1310. apríl 2025Kýótó – Nara – Ósaka

    Kl. 9.30, að morgunverði loknum, skoðum við Sanjusangendo hofið í Kýótó sem er frægt fyrir að hýsa 1001 styttu af náðargyðjunni Kannon. Síðan er snæddur hádegisverður og eftir matinn er ekið með rútu til borgarinnar Nara, sem var höfuðborg Japans á undan Kýótó, á árunum 710–794. Í Nara er eitt merkasta búddahof Japans, Todaiji, sem geymir stærstu Búdda bronsstyttu í heimi. Nara er einnig þekkt fyrir dádýr sem ráfa nánast óhindruð um borgina. Ekið til Osaka og gist þar þessa síðustu nótt okkar í Japan. (M, H)

  14. 1411. apríl 2025Ósaka – heimflug

    Ósaka er þriðja stærstu borgar Japans. Í Ósaka skoðum við fyrst hinn sögufræga Ósaka kastala, sem var mikilvæg miðstöð við sameiningu landsins á 16. öld. Að því loknu borðum við hádegismat saman, en Ósaka er rómuð fyrir ríkulega matarmenningu. Að lokum hádegisverði er frjáls tími og t.d. hægt að skoða sig um í miðbænum og líta í búðir. Um kvöldið keyrir rúta okkur á flugvöllinn í Ósaka. Við fljúgum með Finnair AY068 kl. 22:25 og lendum í Helsinki kl. 5:30 (12. apríl). Síðasti leggur heimferðarinnar er flug AY0991 kl. 7:15 og lent í Keflavík kl. 8:00. (M, H)

  15. 15Praktískar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Staðfestingargjald er óafturkræft nema hætta þurfi við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta dagskrá með stuttum fyrirvara ef þess gerist þörf af óviðráðanlegum ástæðum. Einnig áskiljum við okkur rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Ferðaskrifstofan VITA gefur út farseðla. Fararstjóri í þessari ferð eru Unnur Bjarnadóttir og Örnólfur Árnason. Unnur og Örnólfur hanna og skipuleggja ferðina, velja áfangastaði, gististaði og alla ferðartilhögun. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.

Gisting

  • Hanjuku Remm, Ginza★★★★Tókýó
  • The Square Hotel Kanazawa★★★★Kanazawa
  • Gero Onsen Hotel Kusakabe Armeria Hot Springs★★★★Takayama
  • Miako Hotel Kyoto Hacijo★★★★Kýótó
  • Koko Hotel Shinsaibashi Osaka★★★★Ósaka

Verð

Verð á mann1.095.000 kr
Staðfestingargjald150.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli170.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Allt flug, akstur og lestarferðir sem getið er um í ferðalýsingu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er: M = morgunverður, H = hádegisverður, K = kvöldverður Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Fararstjórn: Unnur Bjarnadóttir og Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Japan — 29. mars – 11. apríl 2025.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 1.095.000 kr

Senda fyrirspurn